Sunnudagur, 21. febrúar 2021
Kvennaskóli hentar ekki drengjum
Grunnskólinn er kvennaskóli, sé tekið mið af kennarastéttinni. Um 90 prósent kennara eru konur, já níu af hverjum tíu. Aðeins einn karlkennari fyrir hverja níu kvenkennara.
Drengjum er kennt, bæði beint og óbeint, að menntun sé fyrir stúlkur. Kvenlægar kennsluaðgerðir, s.s. ,,yndislestur" eru ráðandi eins og við er að búast í kvennaskóla.
Útkoman er fyrirsjáanleg, eins og meðfylgjandi ber með sér. Einungis þriðjungur þeirra sem útskrifast úr háskóla er karlar. Munurinn eykst þegar litið er til framhaldsnámsins. Karlar eru í miklum minnihluta þeirra sem útskrifast með meistara- og doktorspróf.
Gjaldfall menntunar blasir við. Háskólastéttir, sem óðum kvenvæðast, lækka í launum hlutfallslega við aðrar starfsstéttir. Háskólanám almennt lætur á sjá, samanber hjávísindin um manngert veður og kynjafræði sem segja Darwin ómarktækan og halda fram bábiljum um að kynin séu félagslega skilgreind en ekki líffræðilega.
![]() |
Fráleitt að refsa 15 ára drengjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)