Sími skipstjórans í Samherjamálinu

Í viđtengdri frétt segir ađ lögreglan ţurfi úrskurđ dómstóla til ađ rannsaka innhald snjallsíma í tengslum viđ glćparannsókn.

Lands­rétt­ur hef­ur stađfest úr­sk­urđ Hérađsdóms Reykja­ness um ađ lög­reglu­stjór­an­um á Suđur­nesj­um sé heim­il rann­sókn á ra­f­rćnu efn­is­inni­haldi Sam­sung-snjallsíma sem lagt var hald á 23. októ­ber síđastliđinn.

Víkur ţá sögunni ađ Samherjamálinu. Í sumar var frétt um ađ síma Páls Stein­gríms­son­ar skipstjóra hafi veriđ stoliđ međan hann lá á milli heims og helju á sjúkra­húsi. Garđar Gísla­son lögmađur Sam­herja stađfestir ţađ í samtali viđ Morgunblađiđ í maí.

Páll er skipstjóri hjá Samherja og hafđi svarađ RÚV-málflutningi um meinta spillingu Samherja fullum hálsi en átti ađ öđru leyti enga málsađild.

Eftir ađ síma Páls var stoliđ komst innihald símans til RÚV og samstarfsfjölmiđla sem vitnuđu ótćpilega í samskipti Páls viđ ađra undir ţeim formerkjum ađ Páll vćri í ,,skćruliđadeild" Samherja.

En nú vaknar spurning. Fékk RÚV eđa einhver samstarfsađili dómsúrskurđ til ađ nota efni úr snjallsímanum? Ţađ er harla ólíklegt enda hefđi Páll skipstjóri líklega eitthvađ um ţađ ađ segja hvort sóttar vćru upplýsingar í símann.

Varla er ţađ svo ađ RÚV og samstarfsađilar hafi rýmri heimild en lögreglan ađ skođa síma einstaklinga út í bć sem hafa ţađ eitt til saka unniđ ađ bera blak af Samherja?

Einhverra hluta vegna gufađi allur fréttaflutningur upp af stolnum síma Páls skipstjóra. Alveg eins og fréttum af ţví ađ engin ákćra var gefin út í Namibíu á Samherja var sópađ undir teppiđ á ótilgreindri deild.

Eftir stendur rökstuddur grunur um alvarlegt brot á mannréttindum Páls Steingrímssonar. Verđur máliđ ekki rannsakađ? Mun enginn ţurfa ađ svara til saka?


mbl.is Mega skođa síma vegna meintra hótana og ofbeldis
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Jóhannes breytir frásögninni: mér er óhćtt á Íslandi

Jóhannes Stefánsson, uppljóstrarinn í Namibíumálinu, breytir fyrri frásögn um ađ sóst sé eftir lífi hans á Íslandi. Nýja frásögnin er Stundinni, en ţar segist Jóhannes óttast um líf sitt og heilsu í Namibíu ţar sem hann áđur starfađi og skildi eftir sig sviđna jörđ.

Ţorsteinn Már forstjóri Samherja kćrđi Jóhannes til lögreglu í vor ,,fyr­ir rang­ar sak­argift­ir vegna full­yrđinga um til­raun til mann­dráps og frels­is­svipt­ing­ar."

Jóhannes hefur búiđ á Íslandi síđustu ár í friđi fyrir mönnum og málleysingjum. Hann nýtur ţess ađ Ísland er réttarríki. Friđhelgi og mannréttindi nota sumir til ađ koma höggi á menn og fyrirtćki sem ekkert hafa til saka unniđ annađ en ađ sinna sínum störfum. 

Í Namibíu hefur uppljóstrarinn játađ á sig stórar sakir og á ekki auđvelt međ ađ ferđast ţangađ suđur án vandrćđa. Játningar Jóhannesar voru eina fóđur RÚV til seinni atlögu ađ Samherja, eftir ađ fyrri árásin, kölluđ Seđlabankamáliđ, rann út í sandinn.

Nú ţegar frásögn Jóhannesar tekur stakkaskiptum mćtti búast viđ ađ RÚV láti alţjóđ vita og sinni ţar međ skyldu sinni. En nei, ekki orđ frá RÚV um sinnaskipti ađalheimildarmanns stćrsta fréttamáls síđustu ára. Ekki frekar en ađ Efstaleiti greini frá ţví ađ enginn ađili tengdur Samherja fékk á sig ákćru í svokölluđu Namibíumáli.

RÚV bíđur og vonar ađ tíminn sópi Namibíumálinu undir teppiđ. En teppiđ á fréttadeildinni getur ekki huliđ óhreinindin. Ţá er reynt ađ hylja ósómann á annarri deild.


Bloggfćrslur 2. nóvember 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband