Mánudagur, 4. október 2021
Grunur um þingmennsku, kynferðisbrot og fleiri grunsemdir
Grunur þriggja frambjóðenda um að þeir séu í raun þingmenn er tilefni til að efast um lögmæti nýafstaðinna þingkosninga. Grunur um kynferðisbrot er tilefni til að rústa landsliði Íslands í knattspyrnu.
Grunur um loftslagsvá er tilefni til að ríkissjóður eyðir milljörðum króna út í loftið.
Þrjár konur skrifa grein í Morgunblað dagsins um að grunur sé ekki sama og staðreynd.
Í samfélaginu er grunsamlega oft látið eins og grunur jafngildi staðreynd. Sérstaklega ef þeir sem ala með sér grun væla hátt og snjallt á samfjölmiðlum. Hávært fólk með lélega dómgreind gengur á lagið og ímyndar sér hluti sem ekki eru. Og kallar það grun.
![]() |
Uppkosningar ýtrasta úrræðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)