Laugardagur, 16. október 2021
Loftslagsvá er skipulagt svindl
Fræðigreinar sem sem komast að annarri niðurstöðu en þeirri sem IPCC-nefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsvá er stungið undir stól - ekki er vísað til þeirra í skýrslum IPCC.
Ray Bates er írskur loftslagsvísindamaður, menntaður í MIT í Bandaríkjunum og stundað rannsóknir við vísindastofnanir i Danmörku, Bandaríkjunum og Írlandi.
Í 25 mín. viðtali fer Bates yfir stöðu mála í loftslagsumræðunni, einkum IPCC-nefndar SÞ.
Í viðtalinu nefnir Bates skýr dæmi um ritskoðun IPCC á fræðilegum niðurstöðum sem ekki falla að pólitískri stefnu IPCC um yfirvofandi loftslagshamfarir.
Loftslagsvá er skipulagt svindl, búið til af alþjóðastofnun handa stjórnmálamönnum til að réttlæta eigin valdeflingu en hærri skatta og fleiri lög á almenning.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 16. október 2021
Stígamót, Stasi og KSÍ
KSÍ lét Stígamót fá lista yfir landsliðsmenn og bað um nöfnin yrðu könnuð í gagnabanka sem Stígamóta reka og inniheldur sögur um kynferðisbrot. Þetta kemur fram hjá talskonu Stígamóta í viðtali á Útvarpi Sögu.
Gagnabanki með sögum um afbrigðilega hegðun er þræði persónunjósnir eins og stundaðar voru í alræðisríkjum, t.d. Stasi í Austur-Þýskalandi, en hinum þræðinum kúgunartæki. Þegar gagnabankinn fær vottun frá hálfopinberum aðila, KSÍ, opnast tækifæri til að færa út kvíarnar.
Stígamót hafa nú þegar gagnabanka um listamenn og íþróttamenn. Næst er að safna sögum um stjórnmálamenn, kennara, lögreglumenn, millistjórnendur. Í svona málum eykur eftirspurn framboðið. Líkt og fjölmiðlar auglýsa eftir fréttaábendingum auglýsa Stígamót eftir sögum.
Og vitanlega koma sögurnar. Enginn veit hvort sögurnar eru sannar eða ósannar. Enda er það aukaatriði. Sögurnar þjóna þeim tilgangi að valdefla Stígamót og tryggja samtökunum fjárstreymi.
Aukabúgrein hjá Stígamótum væri að þiggja greiðslur til að fjarlægja sögur úr gagnabankanum. Fyrir hádegi er hægt að búa til sögur og eftir hádegi rukka fyrir að strika þær út. Ef menn ætla að halda atvinnu sinni, æru og mannorði er eins gott að borga.
Stasi-Stígamóta lýðveldið er að taka á sig mynd.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)