Föstudagur, 1. október 2021
Útilokunarráðuneyti
Nýtt ráðuneyti útilokunar hlýtur að vera á dagskrá nýrrar ríkisstjórnar. Útilokun er orðin viðtekin hér á landi og brýnt að málaflokkurinn fái eigið ráðuneyti. Verkefni ráðuneytisins yrðu m..a. að
- ákveða hvaða skoðanir séu leyfilegar
- ákveða refsingar þeirra sem sýknaðir eru fyrir dómstólum
- ákveða reglur um hvaða ásakanir jafngilda sekt
- ákveða hve mörg ,,læk" þarf til að sekt sé endanlega sönnuð
- velja landslið Íslands í knattspyrnu (NB. aðeins karlaliðið)
Til að spara ríkisútgjöld mætti leggja inn í nýtt ráðuneyti annað gamalt og úr sér gengið. Nýja heitið yrði: Útilokunar- og góðmenningarráðuneytið.
![]() |
Katrín ræddi við Guðna í morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 1. október 2021
Loftslag árið 2050 sama og árið 1000
Meðalhitinn árið 1000, þegar Íslendingar tóku kristni og byggðu Grænland, er 1,5 gráðum hærri en í dag. Þetta er staðfest með ískjarna úr Grænlandsjökli.
Spámenn sem Sameinuðu þjóðirnar kaupa til að sjá fyrir hamfarahlýnun giska á að hitastigið árið 2050 verði 1,5 gráðum hærra en það er í dag. Sama hitastig og var fyrir þúsund árum.
Árið 1000 var gott að búa á norðurslóðum. Jöklar voru minni, híbýli manna betri en þau urðu á litlu ísöld 1300-1900. Norrænir menn skruppu til Ameríku á vit ævintýra.
Hvert er vandamálið?
![]() |
Áhorfendur NRK æfir yfir veðurspá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 06:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)