Laugardagur, 25. júlí 2020
Ragnar Þór játar fullframinn glæp
Ragnar Þór formaður VR og stjórn félagsins reyndu með ólögmætum hætti að skuggastýra fulltrúum VR í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Yfirlýsing Ragnars Þórs og stjórnarinnar krafðist þess að fulltrúar VR í stjórn lífeyrissjóðsins legðust gegn þátttöku sjóðsins í væntanlegu hlutafjárútboði Icelandair.
Afturköllun yfirlýsingarinnar er játning á fullfrömdum glæp.
Ragnar Þór og stjórn VR eru í sömu stöðu og þjófar sem skila tilbaka þýfinu.
Ætla Ragnar Þór og stjórn VR að sitja áfram, eins og ekkert hafi í skorist?
![]() |
Draga yfirlýsinguna til baka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 25. júlí 2020
RÚV slúðrar áfram - pempíulöggur í áfalli
Hýenufréttir RÚV af lögreglustjóra Suðurnesja verða æ aumkunarverðari. Nú heitir það að ,,ófriðarbál" hafa kviknað í Reykjanesbæ vegna klúrs texta á glámbekk annars vegar og hins vegar fataskipta lögreglustjóra.
Lögreglumenn sem þola ekki að lesa klúran texta og sjá mann á nærbrókum eru ekki starfi sínu vaxnir og ættu að finna sér aðra iðju en halda uppi lögum og reglu.
RÚV er í því hlutverki að magna upp móðursýkiskast á opinberum vinnustað. Fréttamat RÚV stjórnast af illgirni og heimsku. Aðalfréttin í málinu öllu er af pempíulöggum í áfalli. Sú frétt gæti staðið undir því að vera fyndin.
![]() |
Kvörtuðu yfir klúrum texta lögreglustjórans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)