Laugardagur, 23. maí 2020
Rauði krossinn og verkefnalisti vinstrimanna
Áherslumál Rauða krossins eru samkvæmt meðfylgjandi frétt: ,,loftslagsbreytingar, krísur og hamfarir, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, fólksflutningar og valdaójafnvægi."
Vinstrimenn búa til krísur, t.d. hugmyndina um manngert veðurfar, til að dygðaskreyta sig og krefjast almannafjár handa sérfræðingum að fást við ímynduð vandamál. Þá stundar Rauði krossinn að flytja inn til landsins útlendinga til að sérfræðingar geti rukkað ríkið fyrir þjónustu við þá.
Við hæfi er að þekktur vinstrimaður verði varaformaður félagsskapar sem einu sinni var til að hjálpa sjúkum og særðum en ekki ,,sérfræðingum."
Silja Bára kjörin varaformaður Rauða krossins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 23. maí 2020
Svartir kjósa Trump og sagan
Svört saga Bandaríkjanna hófst með fyrsta þrælaskipinu frá Afríku, segir í skipulagri endurskoðun á bandarískri sögu í New York Times.
Hvítari og saklausari útgáfa sögunnar er að Evrópumenn rákust á þetta meginland fyrir tilviljun. Sá fyrsti var annað hvort Leifur Eiríksson eða Bjarni Herjólfsson. Þeir norrænu höfðu vit á að gleyma Ameríku, sagði sá írski snjallyrðasmiður Óskar Wilde.
Hálfu árþúsundi síðar lagði Kólumbus leið sína vestur í leit að sjóleiðinni til Indlands. Frumbyggjarnir fengu heitið Indíánar en hétu skrælingjar á norrænu.
Eftir að deyða drjúgan hluta innfæddra tóku Evrópumenn að flytja inn þræla frá Evrópu. Það er svarta sagan.
En þeir hvítu gerðu fleira. Með þeim vaknaði sú hugmynd að enginn maður skyldi annars eign og háðu innbyrðis blóðugt stríð um þá kennisetningu laust eftir miðja 19. öld. Sjálfræði einstaklingsins. óháð litarhætti, er hugmynd hvítra kristinna manna.
Seinni tíma holdtekja sjálfstæðra manna er Donald Trump. Árið 2016 fékk hann stuðning svartra. Fjórum árum síðar geta þeir svörtu kosið hlekkina á ný. Á 19. öld voru Demókratar flokkur þrælahaldara. En um það lesa menn ekki í New York Times. Háborg frjálslyndra vinstrimanna notar ekki písk og járn til að tryggja sér hollustu undirsáta. Aðferðin heitir sama nafni í Washington og Reykjavík: upplýsingaóreiða, sem góða fólkið tekur að sér að greiða úr gegn gjaldi. Og gjaldið er að lifa í lygi.
Svartir ekki svartir ef þeir kjósa Trump | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)