Vísindi heilsu, hagfræði og valdstjórnar

Sá sem ákallar vísindin til hjálpar í baráttunni við kórónuveiruna fer í geitarhús að leita ullar. Vísindi eru ekki ein heldur skiptast þau í skiptast þau í ótal undirgreinar, sem aftur greinast í undirflokka.

Þær þrjár vísindagreinar sem helst koma við sögu um þessar mundir eru farsóttarfræði (læknisfræði plús tölfræði), hagfræði og stjórnspeki/valdstjórn. Almennt tala þessar vísindagreinar ekki sín á milli í fræðunum. Farsóttarfræði er undirdeild í lýðheilsulækningum, hagfræði er viðskiptagrein og stjórnspeki er ýmist kennd sem húmanísk, enda Platón og Aristóteles frumhöfundar, eða félagsvísindagrein. 

Hver vísindagrein kemur sér upp kennisetningum sem teljast viðurkennd fræði hverju sinni og þróast í takt við siði og menningu.

Sérlega fróðlegt dæmi um hve vísindin eru vanmáttug sem heild gagnvart farsóttinni er breskt viðtal við einn virtasta faraldsfræðing Svía, Johan Giesecke, þann sem réð til starfa núverandi Þórólf sótta þeirra Svía, Anders Tegnell. Nær allt viðtalið er um stjórnspeki, hvernig á að taka samfélag í gegnum farsótt, en sá sænski neglir spyrilinn með lýðheilsufræðum og sóttvörnum. Svör Svíans, sem bersýnilega líður illa, eru pottþétt og höggvarin lýðheilsufræði en spyrilinn er stöðugt að spyrja um valdstjórn, - sem eru ekki lýðheilsufræði.

Meðfylgjandi frétt er um lögfræðilegt álitamál um afleiddar afleiðingar af farsóttinni; um möguleg dómsmál vegna tapaðra lána. Enn ein fræðigreinin kemur til sögunnar.

Hvað ber að gera? 

Jú, byrja á því að viðurkenna að vísindi eru ekki ein heldur mörg, gera gagn en eru takmörkuð. Í öðru lagi að upphaf allra vísinda er skynsemin. Og skynsemin er besti leiðsögumaðurinn um ókannaðar slóðir.

 

 


mbl.is „Lögfræðilega rangt og hreint og beint óskiljanlegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helgi Hrafn mótmælir sjálfum sér

Vísindin bjarga okkur, ekki trúin, segir Helgi Hrafn Pírati, og bætir við ,,smávegis af ást."

Hmm.

Tilraunin með vísindatrú á tímum farsóttar gengur ekki vel. Vísindin, eins og önnur mannanna verk, tala í austur og vestur, ef ekki norður og niður. 

Og ást, jafnvel smávægisútgáfan af henni, er ekkert annað en trú.

Píratar gera sjálfa sig að fíflum í hvert sinn sem þeir opna munninn eða leggjast á lyklaborðið.


mbl.is Helgi Hrafn vandar um við Joe Biden
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glóbalistar féllu á eigin bragði

Kórónuveiran, farsóttin sjálf og efnahagskreppan, er máluð sem skrattinn á vegginn af alþjóðasinnum til að hræða almenning til liðs við hugmyndina um alþjóðlegt yfirvald.

Reynslan kennir aftur að staðbundið vald ræður best við farsóttina. Traust er forsenda lögmæts yfirvalds sem fólk virðir og hlýðir.

Alræmdur íslenskur glóbalisti og fyrrum varaþingmaður Samfylkingar ákallar Bandaríkin að taka alþjóðlega forystu. Það er af sem áður var að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar voru framtíðarríkið. Nú eru það Bandaríki Donalds Trump sem eiga að bjarga heiminum.

En, óvart, heimurinn hefur það ágætt þegar hver hyggur að sínu og gerir sér þjóðarheimili í takt við aðstæður og menningu. 


Bloggfærslur 20. apríl 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband