Laugardagur, 8. febrúar 2020
Franska byltingin og Ríki íslams
Tom Holland heitir breskur sagnfræðingur og skrifar bæði um kristni og múslímatrú. Hann gerði sjónvarpsþátt um Ríki íslams sem hægt er að sjá á RÚV.
Undir lok þáttarins ber Holland saman frönsku byltingarmennina 1789 og hryðjuverkamenn Ríkis íslams. Sameiginlegt er að bæði þeir frönsku fyrir rúmum tveim öldum og þeir múslímsku í samtímanum boða nýtt upphaf baðað í blóði þess gamla.
Franska byltingin var sannanlega blóðug og grimm. Aftur eru mannréttindi á nútímavísu arfur byltingarinnar. Ríki íslams boðar hvorki mannréttindi né gæsku heldur misrétti og viðvarandi ofbeldi rétttrúaðra gegn þeim sem ekki fylgja spámanninum.
Ríki íslams er tilræði við vestræna menningu; franska byltingin var umsköpun menningar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 8. febrúar 2020
Ráðherra-Guðmundur og hinsegin vísindi
Guðmundur Ingi umhverfisráðherra trúir á hinsegin vísindi og leggur þau að jöfnu við rétt hinsegin fólks. Gefum ráðherra orðið:
Þegar litið er til stjórnmálanna á alþjóðavísu veldur afneitun stjórnmálaleiðtoga og hreyfinga víða um heim á loftslagsvísindum mér þungum áhyggjum. Falsfréttir verða æ algengari og uppgangur fasisma og ógeðfelldra viðhorfa í garð hinsegin fólks eru stór viðfangsefni sem síður en svo tilheyra fortíðinni, sagði Guðmundur.
Inn á milli trúarjátningar um hinsegin loftslagsvísindi og hinsegin fólk splæsir Gummi ráðherra gífuryrðum um fasisma, falsfréttir og ógeðfelld viðhorf.
Við sem erum normal, trúum ekki á hinsegin loftslagsvísindi, erum að dómi Hinsegin-Gumma fasistar með ógeðfelld viðhorf (eins og fasisti gæti haft hugguleg viðhorf).
Hinsegin-Gumma klæjar í fingurna að smíða gálga handa þjóðinni. Afbrigðilegir menn þrífast ekki nema í afbrigðilegu samfélagi.
Líkir stjórnmálum við púsluspil | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)