Föstudagur, 28. febrúar 2020
Liverpool ekki meistari í vor...WTF
Úrvalsdeildarleikjum í ensku verður aflýst vegna kórónuveirunnar, segir Telegraph, og mögulega engir meistarar krýndir í vor.
Skítt með peninga, þrítugur draumur YNWA-fólksins gæti breyst í martröð.
Menn verða andvaka af minna tilefni.
Mesta hrun á hlutabréfamarkaði í tólf ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 28. febrúar 2020
Verkföll breyta ekki hallæri í góðæri
Samdráttur er í efnahagskerfinu. Atvinnuleysi eykst, fyrirtæki minnka umsvifin, launagreiðslur standa í stað eða lækka og ríki og sveitarfélög fá lægri skatttekjur.
Verkföll breyta ekki hallæri í góðæri. Herskáir Eflingarsósíalistar geta hamast hvað þeir vilja en þeir breyta ekki lögmálum jafngömlum launavinnunni. Ef minna er til skiptanna þýðir ekki að berja hausnum við steininn og krefjast hærri launa.
Og vitanlega á ekki að setja lög á verkföll fólks sem er jafn skyni skroppið og Eflingarforystan. Það væri að níðast á minnimáttar.
Lögbann á verkfall ekki komið til tals | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 28. febrúar 2020
Efling eykur atvinnuleysi, félagslega einangrun
Sósíalistaforysta Eflingar lokar leikskólum og launþegar verða að taka sér frí úr vinnu til að gæta barna sinna sem einangrast félagslega.
Predrag er frá Serbíu, en hefur búið á Íslandi í rúm 20 ár. Bakland fjölskyldunnar hér á landi er engu að síður lítið og enginn sem getur stokkið til og gætt dótturinnar á meðan þau vinna. Þau þurfa því alfarið að reiða sig á sig sjálf. Við erum eldri foreldrar og við eigum ekki rætur hér á landi. Það eru því ekki ömmur og afar sem geta hlaupið til. Í síðustu viku var konan heima í þrjá daga á meðan ég fór að vinna. Í þessari viku er það öfugt, ég vinn tvo daga og hún þrjá.
Nýir Íslendingar eins og Predrag er frá Serbíu standa sýnu verst að vígi. Þeir eiga ekki fjölskyldu og frændgarð til að aðstoða þegar sósíalistar úthýsa börnum þeirra úr leikskólum borgarinnar.
Fyrirsjáanleg áhrif verkfalls Eflingar er félagsleg einangrun barna og atvinnuleysi fullorðinna. Sósíalisminn virkar alltaf eins, hvort heldur á Íslandi eða Venesúela.
Atvinnuleysi náð toppi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)