Falsfréttaráðherra kvartar: skortur á trúgirni

Æ fleiri Íslendingar hafna trú á manngert veður. Karlar á aldrinum 45 til 66 ára eru sérstaklega tortryggnir.

Guðmundur umhverfisráðherra kvartar sáran undan skorti á trúgirni á manngert veður.

Eðlilega, völd og áhrif Vinstri grænna eru háð trúarbrögðum um að maðurinn stjórni veðurfari jarðarinnar - þegar heilbrigð skynsemi og reynslurök segja annað.


mbl.is Hefur áhyggjur af falsfréttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börn eru manngerð, ekki veðurfar

Framtíð barna er að verða fullorðin. Bernskan rjátlast ekki af sumum þótt æviárunum fjölgi. Ævintýri æskunnar, til dæmis um ofurmátt eða himnaríki og helvíti, er lifandi veruleiki fólks sem ætti að vita betur.

Vinsælt ævintýri fullorðinna þessi misserin er trúin á manngert veðurfar. Í ævintýrinu er veðurfar á jörðinni stöðugt þangað til mannskepnan kom til sögunnar og fiktaði í hitastiginu sem hafði verið óbreytt í 4,6 milljarða ára eða allan líftíma jarðarinnar.

Prestar í ævintýrinu, kallaðir sérfræðingar, boða heimsendi ef maðurinn hverfur ekki frá illskunni, þ.e. nútíma lífsháttum. Í bjartri nýrri veröld er eitt alheimsríki sérfræðinga er halda  hitastigi jarðar við kjörhita. Þeir kenna að gagnrýnin hugsun dragi fólk á tálar. Hvítt er svart og svart hvítt segja sérfræðingarnir og senda þessi skilaboð: 

Til að verja börn kalla skýrslu­höf­und­ar eft­ir nýrri alþjóðlegri hreyf­ingu sem drif­in verði áfram fyr­ir börn og leggja m.a. áherslu á að stöðva verði los­un kolt­ví­sýr­ings, að leyfa þurfi rödd­um barna að heyr­ast...

Nú heitir það ekki lengur að börnin komi til föðurins heldur að foreldrarnir krjúpi fyrir barninu sem leitt af presti - sérfræðingi - sem allt veit en þó ekki neitt.  


mbl.is Erum að bregðast börnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. febrúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband