Mánudagur, 20. janúar 2020
Samfylking vill kalt Ísland
Formaður Samfylkingar segir ,,hlýnun jarðar vera stærsta málið sem heimurinn stæði frammi fyrir..."
Ekki fyrir Ísland. Óskandi væri að hér yrði jafn hlýtt og á landnámsöld. Jöklarnir voru smærri og búsældarlegra var á Fróni.
Á litlu ísöld, 1300 til 1900, varð þjóðin nærri úti í kulda og vosbúð.
Samfylkingu líður ekki vel nema í hörmungum.
Tími á stjórn án Sjálfstæðisflokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 20. janúar 2020
Fréttir fjármagnaðar af ríkinu, nei takk
Peningar frá ríkinu sem fjármagna fréttaflutning stórspilla eðlilegu fjölmiðlaumhverfi. RÚV er lifandi sönnun þess að ríkisfréttir eru hlutdrægar og pólitískar.
Fjölmiðlar eiga að búa við agavald lesenda/áhorfenda/hlustenda en ekki örlæti ríkisins.
Lilja ráðherra menntamála ætti að afturkalla fjölmiðlafrumvarpið og afleggja RÚV að hluta eða öllu leyti.
Lítill stuðningur við fjölmiðlafrumvarp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 20. janúar 2020
EES hentar ekki Íslandi
Þriðji orkupakkinn eykur miðstýringu Evrópusambandsins í raforkumálum. Hækkuð innistæðutrygging bankareikninga miðast við stóra banka sem aldrei munu starfa á Íslandi, nema sem útibú frá evrópskum bönkum.
EES-samningurinn leiðir í íslensk lög ákvæði sem alls ekki henta íslenskum aðstæðum.
Af þessu leiðir ætti Ísland að hefja undirbúning að uppsögn EES-samningsins.
Snýst um kjarna Icesave-deilunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)