Bjarni grínast með Áslaugu Örnu

Áslaug Arna fær dómsmálaráðuneytið fyrir frammistöðuna í orkupakkamálinu, segir Bjarni formaður.

Fótgöngulið Sjálfstæðisflokksins gerði uppreisn gegn orkupakka forystunnar. Fylgi flokksins féll niður fyrir 20 prósent í fyrsta sinn frá hruni.

Ef Álaug Arna fer eins með dómsmálin og orkupakkann þarf helmingur þingflokks XD að leita sér að nýrri vinnu eftir kosningar.

Gálgahúmor formannsins er sérstaklega skemmtilegur - fyrir andstæðinga Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Áslaug vaxi og eflist með hverri raun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan viðheldur samheldni Íslendinga

Þegar vel árar og útflutningur eykst styrkist krónan og allur almenningur fær aukinn kaupmátt. Í hallæri lækkar gengi krónunnar og dreifir byrðinni með minni kaupmætti.

Krónan er næst á eftir fullveldinu mikilvægasta stofnunin hér á landi.

Með evru eða dollar væri efnahagslegt misrétti hér á landi sem eyðilegði samheldni þjóðarinnar.


mbl.is Krónunni tekist að sinna hlutverki sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

El­iza Reid forseti Íslands

Ef hvít buxnadragt Elízu Reid í Höfða í gær er tákn valdeflingar kvenna, líkt og gefið er til kynna í fréttinni, hlýtur Elíza að vera forseti eða gegna öðru valdamiklu embætti.

Varla gengur valdefling kvenna út á að næla sér í maka með völd. Má ekki gera ráð fyrri eilítið meiri metnaði hjá konum?

Fréttin um klæðaburð forsetafrúarinnar er dæmigerð fyrir fjölmiðlaumfjöllun gærdagsins. Móðursjúkir vinstrimenn gáfu tóninn um hvernig ætti að túlka heimsókn varaforseta Bandaríkjanna og blaða- og fjölmiðlamenn fylgdu í humátt eftir. Kjánahrollur fyrir allan peninginn.


mbl.is Sendi Eliza pólitísk skilaboð með dragtinni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. september 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband