Eitt heimsríki, ein mannréttindi og gott veðurfar, takk

Snjallt hjá mannréttindasamtökum að veita Loftslags-Grétu verðlaun með þeim rökum að nú „ógn­ar ham­fara­hlýn­un veru manna á jörðinni og án mann­kyns eru eng­in mann­rétt­indi.“

Rökleg afleiðing af trú á manngert veður er að eitt heimsríki tryggi veðursæld á öllu byggðu bóli. Höfuðstöðvarnar yrðu vitanlega í New York, til að tryggja efnahagslegt réttlæti, og mannréttindaskrifstofan í Mekka, Sádí-Arabíu, myndi sjá um jafnræði kynjanna og ólíkra trúarbragða.

Þeir sem enn eru með öllum mjalla taka eftir felufréttum um að helsti höfundur kenningarinnar um manngert veðurfar, Michael Mann, er afhjúpaður sem svindlari fyrir dómstólum en hafði áður verið negldur fyrir vísindafúsk í heimi akademíunnar.

Og það snjóar snemma í hlýlandi Loftslags-Grétu. En hey, frosin ofankoma þegar enn á að heita síðsumar er sönnun á manngerðri hlýnun. Því hvítt er svart.


mbl.is Thunberg samviskusendiherra Amnesty
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Douglas Murray boðið í Hörpu?

Íslandsvinurinn Douglas Murray fjallar um metoo-byltinguna í nýrri bók sem vekur alþjóðlega athygli.

Verður Íslandsvinurinn í Hörpu að ræða málin?


mbl.is Fólk streymir til landsins á #MeToo-ráðstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretlandi er stjórnað af ESB

Evrópusambandið á nógu marga stuðningsmenn í Bretlandi til að hafa úrslitaáhrif á bresk innanríkismál.

Breskir stuðningsmenn ESB eyðilögðu blaðamannafund forsætisráðherra Bretlands í Lúxemborg og sigri hrósandi ráðherra smáríkisins sýndi autt ræðupúlt Johonson sem vitnisburð um niðurlægingu gamla heimsveldisins.

Meðferð ESB á Bretum auglýsir fyrir alþjóð að Brussel-klúbburinn er stórhættulegur félagsskapur.


mbl.is Lét Boris Johnson heyra það
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. september 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband