Miðvikudagur, 4. desember 2019
Óvísindi, loftslag og óhrein íslensk orka
Markmið um losun koltvísýrings í andrúmsloftið og dagsetningar þar að lútandi eru vísindaleg merkingarleysa, skrifar Judith Curry, sem veit sitthvað um loftslagsvísindi ólíkt öllum þorra þeirra sem eru í Madrid.
En það má græða peninga með því að selja losunarheimildir. Frá Íslandi eru seldar heimildir og samkvæmt orkubókhaldi er orkan hérlendis ekki lengur hrein heldur kjarnorkumenguð. Enginn spyr um veruleikann í blekkingarvef glópahlýnunar.
Það sem gildir er að sýnast og þykjast.
![]() |
Fámenn sendinefnd skiptir liði í Madríd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 4. desember 2019
42% RÚV-skandall
Uppljóstrarinn í Samherjamáli RÚV, Jóhannes Stefánsson, er í bandalagi við namibískan embættismann, Paulus Noa, um að sanna spillingu í samskiptum Samherja við namibísk yfirvöld.
Jóhannes handvelur tölvupósta til að sýna fram á spillingu. Meirihluti tölvupósta Jóhannesar eru ekki birtir, eða 58%.
Handvaldar heimildir er þekkt aðferð til að ,,sanna" ósannindi. Hún er kennd við kölska sem las Biblíuna með sama hugarfari og RÚV les tölvupósta Jóhannesar um Samherja.
![]() |
Segja Jóhannes hafa handvalið tölvupósta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 4. desember 2019
Múslímar og Pólverjar á Íslandi
Langstærsti minnihlutahópurinn á Íslandi er Pólverjar. Ekki verður annað séð en að þeir geri sér far um að falla að siðum og háttum okkar sem byggjum þetta land.
Múslímar, á hinn bóginn, nálgast gestrisni Íslendinga á annan hátt. Þeir reisa trúartákn við fjölfarna samgönguæð. Í frétt um framkvæmdina kemur eftirfarandi fram:
Múslimar á Íslandi lifa í sátt og samlyndi við aðra, segir Askari, sem segir að mínarettan hafi fyrst og fremst það hlutverk að auka sýnileika moskunnar.
,,Sýnileiki" eins skyggir á annan. Það er ekki merki um ,,sátt og samlyndi" að ota framandi trúartáknum framan í Jón og Gunnu. Múslímar ættu fremur að temja sér pólska háttvísi.
![]() |
Voldugur bænaturn reistur í Hlíðunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)