Alþingi: byggjum sjúkrahús í Albaníu

Í Albaníu er það þekkt staðreynd að hægt er að fá ókeypis fæðingarhjálp á Íslandi, einkum ef heilsufar móður er tæpt. Þess vegna koma albanskar fjölskyldur hingað.

Á alþingi rís hver þingmaður upp á fætur öðrum til að lýsa samstöðu með fæðingarþjónustu fyrir albanskar konur. Hundaflautufrétt RÚV í hádeginu var útkallið.

Alþingi fer með fjárveitingavaldið. Í stað þess að tala til góða fólksins væri nær að þingmenn samþykktu fjárframlög til Albaníu og reistu þar sjúkrahús fyrir vanfærar konur.

Það getur ekki kostað meira en 5 til tíu milljarða að byggja fæðingarheimili í Albaníu.

Sérstaklaga hljóta þingmenn vinstriflokkanna að láta hendur standa fram úr ermum.

Koma svo, góða fólkið bíður í ofvæni.

 


mbl.is Fordæmdu brottvísun albönsku konunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

No Border fær fyrstu frétt á RÚV

Samtök sem kallast No Border og vilja óheft aðgengi útlendinga að skattfé Íslendinga fékk fyrstu frétt RÚV í hádeginu undir málstaðinn.

RÚV stendur sig vel sem almannatengill aðgerðasinna.


100 konur og rétturinn til að niðurlægja

Tæplega 100 konur ásaka Steinunni Ólínu um að vera ,,í keppni að niðurlægja fólk án dóms og laga." Tilefnið er grein Steinunnar Ólínu þar sem hún andmælir mannorðsmorðum í skjóli nafnleyndar.

Orðalagið ,,niðurlægja án dóms og laga" er afhjúpandi. Tilfellið er að hvorki lög né dómar ganga út á að niðurlægja fólk. Mönnum er gerð refsing eða þeir sýknaðir.

100-konu yfirlýsingin gengur aftur út á réttinn til að niðurlægja. Það er tungunni tamast sem hjartanu er kærast. 


Bloggfærslur 5. nóvember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband