Fimmtudagur, 28. nóvember 2019
Örvænting á RÚV: óspilltur Namibíumaður til hjálpar
RÚV er með fastagest frá Namibíu í fréttatímum. Sá heitir Paulus Noa og er yfirmaður ACC, spillingarlögreglu Namibíu. Í fréttatíma kvöldsins spyr Paulus Noa fyrir hönd RÚV: ,,Ef ég mætti spyrja ykkur, Íslendinga; hvað eruð þið að gera í rannsókn á ykkar fólki?"
Paulus Noa var í gærkvöld í fréttum RÚV og sagði Samherjarannsóknina hafa staðið yfir í eitt ár. Fyrirsögnin var krassandi: ,,Spillingin drepur blátt áfram fólk."
Paulus Noa er ekki pottþéttur með dagsetningar, ekki frekar en RÚV með heimildir og ásakanir. Noa segir í RÚV fyrir hálfum mánuði, 13. nóvember, að múturannsóknin hafi staðið yfir frá 2014. En einmitt á þeim tíma kastaðist í kekki milli Samherja og viðskiptafélaga í Namibíu er leiddi síðar til málaferla þar syðra.
En hvað skiptir það máli hvort rannsóknin hafi byrjað fyrir fimm árum eða einu, aðalatriðið er að negla Samherja, bæði sunnan og norðan miðbaugs.
Í frétt sem skrifuð er laust fyrir miðnætti í gærkvöldi á RÚV, jú menn leggja á sig yfirvinnu í þágu málstaðarins, segir að Samherjamenn séu nafngreindir í ákæru - jú, hvers annars en Paulus Noa. Eini maðurinn sem ekki er nafngreindur er Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi verkefnisstjóri Samherja í Namibíu, sem játað hefur að hafa greitt mútur.
Jóhannes er uppljóstrari Paulus Noa og nýtur friðhelgi. Báðir eru algjörlega óspilltir, það vita bæði guð og RÚV.
![]() |
Á ekki og hefur aldrei átt Cape Cod FS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28. nóvember 2019
Formaður Viðreisnar: bæjarútgerðir, já takk
Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar er þá sósíalisti inn við beinið. Hún vill nota stjórnarskrá lýðveldisins til að koma málum svo fyrir að eingöngu opinberar útgerðir dragi fisk á Íslandsmiðum.
Í orði kveðnu þykist Viðreisn frjálslyndur hægriflokkur. Tillögur flokksins ganga þó oftar en ekki út á aukin ríkisafskipti.
Viðreisn sósíalískra bæjarútgerða toppar þó flest annað frá flokki ESB-sinna.
![]() |
Tryggja varanlegt eignarhald þjóðarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 28. nóvember 2019
Helgi Seljan styður arfleifð apartheit
Suður-Afríka lagði undir sig Namibíu í fyrra stríði og innleiddi apartheit-stefnu þar sem hvít yfirstétt arðrændi þeldökkan almúga. Helgi Seljan tekur málstað fyrirtækja gamla nýlenduveldisins til að koma höggi á útgerð Samherja í Namibíu.
Namibía fékk sjálfstæði 1990 og freistar þess að losa um tök suður-afrískra fyrirtækja sem ráða lögum og lofum í landinu frá tímum apartheit-stefnunnar.
Helgi Seljan og RÚV eru orðnir bandamenn fyrirtækja gamla nýlenduveldisins í baráttu um að halda stöðu sinni í Namibíu.
Svo bregðast krosstré sem önnur tré.
![]() |
Segja Helga Seljan ítreka ósannindi um Samherja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)