Miðvikudagur, 30. október 2019
Síðasta vígi ESB-sinna fellur á Íslandi
Samtök iðnaðarins undir forystu Helga Magg eiganda Viðreisnarfréttablaðsins voru til skamms tíma höfuðvígi ESB-sinna. Hjá SI fékk samfylkingar- og viðreisnarfólk vinnu að grafa undan fullveldinu, búa til sögur um ónýta Ísland og lofsyngja evruna og Evrópusambandið.
En nú er hún Snorrabúð stekkur. Samtök iðnaðarins lofa og prísa krónuna og sjálfstæða vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands.
Ósagt í áliti SI er að evran er ónýt, ekki hægt að lækka þar vexti enda eru þeir í núlli.
Í stuttu máli: Ísland með krónuna er heilbrigt efnahagssvæði en ESB með evru óheilbrigt.
SÍ þurfi að bregðast við dökkum efnahagshorfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 30. október 2019
Siðrof í síðnútíma: Gréta og guð
Síðnútími, oft kallaður póstmódernismi, hafnar algildum kennisetningum. Trú án sönnunar er æðsta algildið.
Biskup Íslands kennir það við siðrof að kristinfræði voru aflögð í barnaskólum. Gerendur í siðrofinu voru vinstrimenn og frjálslyndir.
Blessuð börnin fengu í staðinn loftslagstrú með Grétu Thunberg sem spámann.
Grétulegt sakleysi með vísindatrú að vopni býður síðnútíma til hólmgöngu. Kristmenn krossmenn Grétu eru gerendur fyrra siðrofsins; vinstrimenn og frjálslyndir. Eftirsjá eftir æðsta algildinu, fölskvalausri trú, er áþreifanleg.
Guð féll en upp reis Loftslags-Gréta.
Greta hafnaði verðlaunum Norðurlandaráðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)