Þriðjudagur, 15. október 2019
Pólverjaandúð á Eyjunni
Eyjan segir í fyrirsögn um kosningahegðun Pólverja á Íslandi í nýafstöðnu þingkosningum í heimalandi þeirra:
25% Pólverja á Íslandi kusu öfgahægriflokk sem á rætur í nýnasisma
Efnislega er fyrirsögnin röng. Í fréttinni sjálfri segir að aðeins um 12 prósent Pólverja hér á landi hafi greitt atkvæði.
Texti fréttarinnar gengur út á að gera Pólverja á Íslandi að fasistum. Þar segir m.a.
Á Íslandi kusu næstflestir bandalag öfga hægriflokka, Bandalag um frelsi og sjálfstæði. Hann er samansafn minni flokka sem sumir eiga rætur í nýnasisma...
Það er óviðkunnanlegt, svo ekki sé meira sagt, að skrifa svona um fólk sem býr og starfar hér á landi í sátt við guð og menn.
Eyjan hlýtur að biðjast afsökunar á fréttinni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 15. október 2019
Gulli ruglar saman orsök og afleiðingu Ríkis íslams
Ríki íslams náði sér á strik í Írak og Sýrlandi eftir að vestræn ríki eyðilögðu stjórnkerfi landanna tveggja. Veraldlelgir harðstjórar, Hussein og Assad, komu í veg fyrir framgang Ríkis íslam. Eftir afsetningu Hussein 2003 og áhlaups á Assad áratug síðar varð fjandinn laus.
Gulli utanríkis er blindaður af áróðri vestrænna stríðsæsingamanna þegar hann segir að bandalag Kúrda og Assad muni leysa í læðingi íslamista. Staðkunnugir segja yfirráð Assad yfir öllu sýrlensku landi kæfa í fæðingu valdeflingu íslamista.
Verkefnið ,,gerum Írak og Sýrland að frjálslyndum vestrænum ríkjum", sem kenna má við forsetana Bush og Obama, ól af sér Ríki íslams. Verkefnið var byggt á fölskum forsendum, að vestræn stjórnskipun sé útflutningsvara.
Staðreyndirnar tala sínu máli. Án misráðinna hernaðarævintýra vesturlanda í miðausturlöndum væri ekki uppgangur íslamskra öfgahreyfinga. Múslímar verða sjálfir að ráða fram úr sínum málum.
Raunveruleg hætta á uppgangi ISIS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)