Krónan hornsteinn velmegunar

Ríkissjóður fær jákvætt lánshæfismat. Enn og aftur fær krónan staðfestingu alþjóðlegra matsfyrirtækja. Hrun fjármálakerfisins fyrir tíu árum notuðu óprúttnir pólitískir aðilar, les: Samfylkingin, til að formæla krónunni.

Við komumst aldrei úr kreppu og gjaldeyrishöftum með krónuna sem gjaldmiðil, var viðkvæðið.

Reynslan afhjúpar loddaraskap Samfylkingar, og síðar Viðreisnar. Það var einmitt vegna krónunnar sem við unnum okkur hratt og vel úr kreppunni.


mbl.is Moody's metur horfur nú jákvæðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar og Helga Vala: við ein höfum rétt að mótmæla

Forseta danska þingsins var boðið til fullveldishátíðar á Íslandi. Þingflokkur Pírata og Helga Vala þingmaður Samfylkingar ákveða að mótmæla komu þingforsetans.

Mótmælin mæltust illa fyrir - þeim var mótmælt.

Nú stíga Píratar og Helga Vala fram og segjast ein hafa rétt til að mótmæla; það má ekki mótmæla þeim sjálfum.

Afstaða Pírata og Helgu Völu byggir annað tveggja á hroka eða heimsku.

Vitanlega er það svo að mótmælum má mæla í mót. Tjáningarfrelsið er allra, ekki aðeins fyrir sjálfumglaða hrokagikki. 


mbl.is Ósátt við yfirlýsingu Steingríms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband