Vinstri grænir vilja kaupa Árna Pál - Gulli á að neita

Árni Páll Árnason er fyrrverandi formaður Samfylkingar, höfuðandstæðings Vinstri grænna frá aldamótum. Gangi Árni Páll til liðs við ríkisstjórnina, þó ekki sé nema sem ráðgjafi, fylgir honum pólitískt kapítal sem leggst beint inn á reikning Vinstri grænna.

Um Árna Pál er það að segja að hann skilur minna en ekkert í Evrópusambandinu. Í heimi Árna Páls er ESB vegurinn, sannleikurinn og lífið. Ráðgjöf hans yrði verri en engin.

Utanríkisráðuneytið fer með forræði þeirra mála er snúa að ESB. Guðlaugur Þór ráðherra málaflokksins ætti í mestu vinsemd ráðleggja Vinstri grænum að nota ríkisstyrkinn til að ráða Árna Pál á skrifstofu flokksins. Árna Páli á ekki að hleypa inn um bakdyrnar í stjórnarráðinu.


mbl.is Vill Árna Pál í Brexit-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð er tímabil í þjóðarsögunni

Davíð kom, sá og vann oftar sigra en ekki. Oftast voru sigrarnir í þágu réttmæts málstaðar. Fáir verða í lifandi lífi goðsagnir, en Davíð varð það fyrir lifandi löngu. 

Þegar Davíð axlar sín skinn og sest í helgan stein lýkur tímabili í þjóðarsögunni. 

Davíðstímabilið er ekki runnið sitt skeið. Og það er fagnaðarefni.


mbl.is Ekkert að hugsa um að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB reynir að deila og drottna í Brexit

Nýjasta útspil valdhafa Evrópusambandsins er að bjóða Bretum að hætta við útgöngu. Brexit, útganga Breta úr ESB, var niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi.

Tilboð ESB um að Bretar hætti við útgöngu er beinlínis gerð til að auka úlfúð í breskum stjórnmálum. Þessi aðferð heitir að deila og drottna. Heimsveldi, allt frá dögum Rómarveldis, nota aðferðina til að veikja andstæðinginn.

Mikilvægasti lærdómurinn sem við getum dregið af Brexit er hvernig ESB tuddast á þjóðum sem voga sér að afþakka aðild að félagsskapnum.


mbl.is Brexit rætt í ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. janúar 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband