Múslímsk móðir: blessun að barnið mitt dó

Finnsk kona, sem gekk múslímatrú á hönd, skrifar um tilveru sína í Ríki íslams, Kalífadæminu í Sýrlandi og Írak, í nýjasta hefti samtakanna, Dabiq. Konan, Umm Khalid al-Finlandiyyah, er fædd inn í kristni en fann trúarsannfæringu sinni farveg í múslímatrú. 

Hún lýsir hve vel henni líði í Ríki íslams þar sem börnin hennar eru alin upp í sannri trú. Hér er kafli úr ritgerð Umm Khalid þar sem hún lýsir hve þakklát hún er að barnið sitt dó ,,píslarvættisdauða." 

Here you’re living a pure life, and your children are being raised with plenty of good influence around them. They don’t need to be ashamed of their religion. They are free to be proud of it and are given the proper creed right from the start. After four months of us being here, my son was martyred, and this was yet another blessing.

Ef kristin kona talaði á þessum nótum um barnið sitt yrði hún óðara stimpluð sem geðveik. En Umm Khalid er sannfærður múslími og finnst aldeilis frábært að barnið hennar dó fyrir trúna. Samfélagsrýnirinn Sam Harris tekur Umm Khalid sem sýnishorn af brjálæðinu sem boðið er upp á í nafni múslímatrúar.

Barnið sem sprengdi sig og um 50 aðra í loft upp í brúðkaupsveislu í Tyrklandi átti kannski móður eins og Umm Khalid al-Finlandiyyah.


mbl.is 12 til 14 ára barn í sprengjuvestinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vont fyrir stjórnmálin ef Sigmundur Davíð hættir

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var skotmark áróðursherferðar fjölmiðla, þar sem RÚV fór fremst í flokki. Hlutlægir blaðamenn, sem fóru í saumana á svokölluðum Panama-skjölum, segja ekkert misjafnt koma fram um fjármál Sigmundar Davíðs og eiginkonu hans. Blaðamenn Guardian skrifa:

Guardian hefur ekki séð neinar sannanir fyrir skattaundanskotum eða óheiðarlegum ávinningi Sigmundar Davíðs, Önnu Sigurlaugar eða Wintris.
(The Guardian has seen no evidence to suggest tax avoidance, evasion or any dishonest financial gain on the part of Gunnlaugsson, Pálsdóttir or Wintris.)

RÚV-herferðin gegn Sigmundi Davíð er ein ljótasta misnotkun fjölmiðla á seinni árum. Ríkisfjölmiðillinn þverbraut eigin siðareglur í raðfréttaflutningi sínum um mál Sigmundar Davíðs og eiginkonu hans.

Við viljum ekki að siðlausir fjölmiðlar ráði ferðinni í íslenskum stjórnmálum. Þess vegna er brýnt að Sigmundur Davíð haldi áfram þátttöku sinni í stjórnmálum. Ef hann hættir vegna RUV-herferðarinnar yrði það sigur siðleysis yfir siðmenningu.


mbl.is Sigmundur vill leiða flokkinn áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. ágúst 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband