Magma stofnað á Íslandi 2001 og aftur í Kanada 2008

Samkvæmt tímaritsviðtali við Ross Beaty forstjóra Magma Energy frá í vor stofnaði hann fyrirtæki fyrir tveim árum þegar hann enduruppgötvaði sig sem náttúruverndarsinna. Engar skýringar aðrar eru gefnar á skyndilegum áhuga Beaty á jarðvarma.

Fyrir tæpum áratug sagði Morgunblaðið frá því að stofnað hefði verið fyrirtæki á Íslandi til að fjárfesta í orkugeiranum. Þetta fyrirtæki hét Magma og stofnendur voru Landsbankinn og 3P-fjárhús sem Hagkaupsfjölskyldan átti með Páli Kr. Pálssyni.

Landsbankinn fór síðar til Björgólfsfeðga með alkunnum afleiðingum. Magma fær endurnýjun lífdaga án þess að fyrir liggi hvernig. Þó er vitað að bæði Björgólfsfeðgar höfðu áhuga á íslenskum orkulindum sem og Jón Ágeirs Jóhannesson sem kenndur er við Baug og Hannes Smárason.

Rannsókn þarf að leiða í hvernig Beaty og íslensku auðmennirnir véluðu um orkuauðlindirnar hér á landi.  


Raðbraskari telur Íslendinga auðvelda bráð

Ross Beaty forstjóri Magma telur Íslendinga auðvelda bráð fyrir raðbraskara eins og hann. Beaty er sölumaður framm í fingurgómana og keypti heilsíðuauglýsingar í vor með skilaboðum að Magma ætlaði að eignast auðlindir Íslands í þágu þjóðarinnar.

Maður með fullar hendur fjár kemst býsna langt, einkum hjá þeim sem telja allt falt fyrir rétta fjárhæð. Jónas vekur athygli á vændisblaðamennsku DV gagnvart Beaty.

Samfylkingin er þegar kominn ofan í vasa Beaty. Spurningin er hvort Vg rúmist þar líka.


mbl.is Beaty svarar Björk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HR; við borgum en auðmenn eignast

Róbert Wessmann auðmaður lofaði Háskólanum í Reykjavík milljarði króna og fékk 30% hlut í skólanum fyrir út á það loforð. Samkvæmt Eyjunni ætlar Wessmann ekki að standa í skilum með 500 milljónir króna til skólans.

Þegar tilkynnt var um framlag Wessmann á sínum tíma var dregin fjöður yfir eignarhald auðmannsins á þessum einkarekna háskóla. María Kristjánsdóttir bendir á hversu öfugsnúið það er að auðmenn eignist hlut í menntastofnunum sem við, almenningur, borgum reksturinn á.

Menntamálaráðherra á vitanlega að grípa í taumana og beintengja HR við veruleikann. Valið stendur á milli þess að auðmenn eigi og reki HR eða ríkisvaldið yfirtekur skólann. Punktur.

 


Njáll, Páll og kreppan

Tveir andans menn rífast um kreppuna og rétt viðbrögð við henni. Njáll Fergusson, einn þekktasti sagfræðingur samtímans með efnahagssögu sem sérgrein, segir ekki hægt að auka peningamagn í umferð til að vinna bug á kreppunni. Kreppan sé afleiðing af of ódýrum peningum í of langan tíma. Páll Krugman nóbelsverðlaunahafi í hagfræði segir kreppuna stafa af lausafjárskorti og því verði að auka peningamagn í umferð.

Steingrímur J. fjármálaráðherra gerir hvorttveggja, beitir aðhaldi og eykur peningamagn í umferð, og hlýtur því að vera á réttri braut.


Bloggfærslur 21. júlí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband