Sunnudagur, 11. júlí 2010
Ráðuneyti í samsæri gegn almannahagsmunum
Magma er kanadískt fyrirtæk sem íslenskir útrásarauðmenn og meðhlauparar þeirra gerðu samkomulag við að tæki upp þráðinn þegar gjaldþrot Geysir Green/REI blasti við. Iðnaðarráðuneyti lýðveldisins Íslands tók þátt í samsæri Magmahópsins um að komast hjá lögum sem banna fyrirtækjum utan EES-svæðisins að fjárfesta í þjóðarauðlindum.
Hér er Ásgeir Margeirsson framkvæmdastjóri Magma, áður forstjóri Geysir Green og hægri hönd Jóns Ásgeirs og Hannesar Smára í orkuútrásinni
Magma sagðist þá vilja stofna félag á Íslandi til að gera þetta, en þá kom fram að þetta tiltekna félag sem stofnað væri utan um fjárfestinguna mætti ekki vera á Íslandi heldur yrði það að vera annars staðar á EESsvæðinu. (Leturbr. pv)
Með orðunum ,,þá kom fram" er Ásgeir að vísa til samráðsfundar með iðnaðarráðuneytinu.
Ráðuneyti sem tekur þátt í samsæri gegn almannahagsmunum starfar ekki í þágu þjóðarinnar heldur auðmanna. Við eigum að uppræta vinnubrögð af þessu tagi því það voru einmitt svona snúningar sem orsökuðu hrunið.
![]() |
Ræddu hvernig lögin virkuðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 11. júlí 2010
Ráðherra viðurkennir svikráð
Iðnaðarráðuneytið fer með úrskurðarvald um það hvort kaup Magma á íslenskum orkulindum séu samkvæmt lögum og reglum. Þegar ráðuneytið leiðbeinir kanadíska fyrirtækinu Magma um það hvernig hægt er að komast í kringum lögin með því að stofna skúffufyrirtæki í Svíþjóð eru staðfest svikráð gegn almannahagsmunum.
Ráðneyti Samfylkingarinnar vinnur í þágu braskara en ekki almannaheilla. Ráðuneytið leiðbeinir um svikin, nefnd á vegum ráðuneytisins blessar leiðbeiningar ráðuneytis og loks ætlar ráðherra að heimila gjörninginn; hleypa bröskurum að orkuauðlindunum.
Katrín sagði iðnaðarráðuneytið og lögmenn þess einungis veita ráðgjöf um þau lög sem menn þurfi að taka tillit til þegar unnið sé að stofnun fyrirtækja.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra viðurkennir að ráðuneytið sem hún stýrir grefur undan þjóðarhagsmunum. Ráðherra í þessari stöðu verður að segja af sér.
![]() |
Veitti Magma ekki ráðgjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Sunnudagur, 11. júlí 2010
Vg slítur stjórninni vegna Magma
Vinstri grænum er ekki sætt í ríkisstjórn með Samfylkingarráðherra sem leiðbeinir útlendum braskara að fara á svig við íslensk lög sem vernda eiga þjóðarauðlindir. Magma-máli sýnir Samfylkinguna útsendara auðmanna sem nýta sér aðstæður á Íslandi til að eignast orkuauðlindir með ólögmætum hætti.
Siðleysi iðnaðarráð'herra og trúnaðarbrot gagnvart almenningi verður ekki réttlætt. Ráðherra er á launum hjá þjóðinni og þakkar fyrir sig með því að selja þjóðareigur í hendur útlendinga til að braska með.
Hér þarf að bregðast skjótt og örugglega við og stjórnarandstaðan verður að sýna manndóm. Vg slítur stjórninni og fær stuðning Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks til að mynda minnihlutastjórn. Þingkosningar fari fram í desember.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sunnudagur, 11. júlí 2010
Þjóðarhagsmunir og prósentur Samfylkingar
Sannfæring Samfylkingarinnar er að þjóðarauðlindir til sjávar og sveita eru best komnar í höndum útlendinga. Eins og allar þjóðir hafa Íslendingar reynt að standa vörð um auðlindir sínar og sett til þess lög. Ráðherra Samfylkingarinnar leiðbeinir útlendum braskara að komast hjá lögum og reglum sem gilda um fjárfestingar útlendinga í þjóðarauðlindum.
Samfylkingin telur það hlutverk sitt að koma almannaeigum í verð hjá bröskurum og hirða sínar prósentur.
Útrásarhugarfarið er allsráðandi í Samfylkingunni. Björgólfur Thor Björgólfsson fékk til liðs við sig fjárfesti úr Samfylkingunni og í framhaldi voru sett lög fyrir gagnaver Björgólfs Thors. Það negldi samninginn fyrir Björgólf Thor að hann þóttist hafa útlending með sér í verkefninu.
![]() |
Vill fund um Magma í iðnaðarnefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)