Laugardagur, 10. júlí 2010
Samfylkingin leiðbeinir braskara
Samfylkingin er þjófur klæddur í búning stjórnmálaflokks. Ráðuneyti sem Samfylkingin kemst yfir breytast óðara í vændishús. Viðskiptaráðuneyti Björgvins G. Sigurðssonar stráði glassúr yfir útrásarsukkið og blessaði Baug í bak og fyrir. Iðnaðarráðuneyti Össurar og Katrínar Júl. leiðbeinir bröskurum að komast yfir auðlindir þjóðarinnar.
Samfylkingin er flokkur siðleysingja sem á götum og torgum auglýsa þjónustu sína til auðmanna undir formerkjunum: Það er sama hvaðan gott kemur.
Það sem er gott fyrir Samfylkinguna er vont fyrir þjóðina.
![]() |
Iðnaðarráðuneyti leiðbeindi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 10. júlí 2010
Meðhlauparar tryggja útrásinni framhaldslíf
Útrásarmenn kunnu ekki ensku samkvæmt fréttum af eiðsvörnum vitnisburði Jóns Ágeirs Jóhannessonar, Ingibjörg Pálmadóttur og Pálma í Fons. Tíðindin eru stoð fyrir tilgátu um verkaskipti græðgisvæðingarinnar.
Útrásarauðmenn lögðu til þekkingarleysi á erlendum tungumálum og þeir kunnu heldur ekki mannasiði, gátu ekki greint á milli réttlætis og ranglætis, sanninda og ósanninda, heilbrigðra viðskiptahátta og óheilbrigðra.
Víðtækur skortur á siðferðilegu og félagslegu taumhaldi var framlag auðmannanna. Meðhlauparar þeirra á endurskoðunarskrifstofum, lögfræðistofum, almannatengslafyrirtækjum, fjármálastofnunum og í stjórnmálaflokkum lögðu til tæknilega kunnáttu sem gerði útrásina mögulega.
Útrásarauðmenn hittu fyrir marga viljuga meðhlaupara sem tóku þátt í spillingunni. Meðhlaupararnir eru margir enn í ábyrgðarstöðum og vilja fyrir hvern mun halda hlífiskildi yfir Jóni Ásgeiri og félögum. Pálmi í Fons á enn flugfélagið sitt og Jón Ásgeir verslanir og fjölmiðla.
Mestur munar um að Samfylkingin er í ríkisstjórn og starfar samkvæmt bandalaginu sem gengið frá í formannstíð Össurar Skarphéðinssonar um að Samfylkingin veitti Jóni Ásgeiri pólitískan styrk en fengi á móti annars vegar fjárhagslegan stuðning og hins vegar málafylgju fjölmiðla Jóns Ásgeirs.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)