Fimmtudagur, 6. maí 2010
Einn í gæsluvarðhaldi, annar á framfæri Samfó
Handtaka Hreiðars Más Sigurðssonar fyrrverandi forstjóra Kaupþings leiðir hugann að öðrum helstu gerendum gjaldþrota bankanna. Björgólfur Thor átti ásamt föður sínum Landsbankann og Straum.
Þökk sé Samfylkingunni er Björgólfur Thor í ágætum málum og um það bil að fá lög samþykkt á alþingi um skattaafslátt fyrir gagnaver sem hann hyggst reisa á Miðnesheiði með peningamanni úr röðum Samfylkingarinnar.
Siðlausa ríkisstjórn Jóhönnu Sig. er þeirrar skoðunar að saman sé hvaðan gott kemur - og útrásarpeningar jafngóðir og hverjir aðrir samkvæmt nýrri skilgreiningu íslenskra vinstrimanna á siðferði.
![]() |
Hreiðar Már í skýrslutöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 6. maí 2010
Sigurjón M. Jón Ásgeir og eingreiðslan
Sigurjón M. Egilsson var ráðinn á Blaðið sumarið 2006 sem þá var í helmingseigu Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins. Rökin fyrir ráðningu Sigurjóns voru m.a. þau að hann hefði gert uppreisn gegn Gunnari Smára bróður sínum sem var fjölmiðlastjóri Baugs.
Baugsmálin voru fyrir dómstólum þessi misserin. Í nóvember 2006 birti Blaðið svæsnar árásir á Arnar Jensson lögreglumann vegna mála sem voru 10-20 ára gömul. Arnar hafði komið að rannsókn Baugsmála. Arnar skrifaði grein í Morgunblaðið öldungis forviða
ég verð að játa að það hvarflaði að mér hvort við værum virkilega að upplifa aðferðir Berlusconis á Ítalíu eða skipulagðra glæpahópa sem starfa í skjóli auðs.
Sigurjón M. skákaði í því skjóli að starfa á Blaðinu, sem ekki var Baugsmiðill heldur tilheyrði Morgunblaðsútgáfunni. Tvær grímur runnu á þá sem trúðu að ærlegur þráður væri í blaðamannsæru Sigurjóns M. þegar hann réð sig til starfa hjá Baugsútgáfunni áramótin 2006/2007.
Samkvæmt nýjum upplýsingum frá gamla vinnuveitanda Sigurjóns M. þáði hann eingreiðslu frá Jóni Ásgeiri Baugsstjóra haustið 2006.
Vitanlega var eingreiðslan ekki mútufé til að Sigurjón M. tætti æruna af vitni i Baugsmálinu. Sigurjón M. og hans slekt eru heiðarlegir fagmenn með orðspor í samræmi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 6. maí 2010
Sigurjón M. Jón Ásgeir og eingreiðslan
Sigurjón M. Egilsson var ráðinn á Blaðið sumarið 2006 sem þá var í helmingseigu Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins. Rökin fyrir ráðningu Sigurjóns voru m.a. þau að hann hefði gert uppreisn gegn Gunnari Smára bróður sínum sem var fjölmiðlastjóri Baugs.
Baugsmálin voru fyrir dómstólum þessi misserin. Í nóvember 2006 birti Blaðið svæsnar árásir á Arnar Jensson lögreglumann vegna mála sem voru 10-20 ára gömul. Arnar hafði komið að rannsókn Baugsmála. Arnar skrifaði grein í Morgunblaðið öldungis forviða
ég verð að játa að það hvarflaði að mér hvort við værum virkilega að upplifa aðferðir Berlusconis á Ítalíu eða skipulagðra glæpahópa sem starfa í skjóli auðs.
Sigurjón M. skákaði í því skjóli að starfa á Blaðinu, sem ekki var Baugsmiðill heldur tilheyrði Morgunblaðsútgáfunni. Tvær grímur runnu á þá sem trúðu að ærlegur þráður væri í blaðamannsæru Sigurjóns M. þegar hann réð sig til starfa hjá Baugsútgáfunni áramótin 2006/2007.
Samkvæmt nýjum upplýsingum frá gamla vinnuveitanda Sigurjóns M. þáði hann eingreiðslu frá Jóni Ásgeiri Baugsstjóra haustið 2006.
Vitanlega var eingreiðslan ekki mútufé til að Sigurjón M. tætti æruna af vitni i Baugsmálinu. Sigurjón M. og hans slekt eru heiðarlegir fagmenn hvers og orðspor í samræmi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 6. maí 2010
Margrét skilur almenning, ríkisstjórnin Björgólf Thor
Margrét er talsmaður almannahagsmuna að útrásarauðmenn komi ekki nálægt endurreisn atvinnulífsins. Ríkisstjórnin og Sjálfstæðisflokkurinn eru úti á þekju í málinu sem sést best á stórundarlegum ummælum aðstoðarmanns forsætisráðherra, sem sagði saman hvaðan gott kæmi, og Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sagði alþingi ekki eiga að fella siðadóma.
Almannahagsmunir eru að úthýsa útrásarauðmönnum og leyfa þeim hvergi að koma uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi. Óþurftarmennirnir vita þetta og koma sér upp leppum, sbr. Björgólf Thor og Vilhjálm Þorsteinsson fjárfesti með samfylkingartengsl.
Björgólfur Thor ætti að einbeita sér að fjárfestingum í Austur-Evrópu, viðskiptasiðferðið þar hentar honum og hans líkum.
![]() |
Hugnast ekki aðkoma Björgólfs Thors |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 6. maí 2010
Djókið er dauðans alvara, Ólína
Ólína Þorvarðardóttir þingmaður Samfylkingar gagnrýnir framboð Besta flokksins og þó meira þá sem veita framboðinu fulltingi í skoðanakönnunum. Lykilsetning í máli Ólínu er
Menn verða að standa fyrir eitthvað í pólitík.
Fólki finnst stóru að flokkarnir, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur, standi ekki undir nafni. S-flokkarnir mynda skjaldborg um Guðlaug Þór og Steinunni Valdísi. Flokkar sem ekki halda eigin húsum í lagi eru gagnslausir.
Ólína ætti að hnippa í sitt fólk og vekja athygli á andófinu sem brýst fram í stuðningi við grínframboð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 6. maí 2010
Innflutt störf og bóluatvinnulíf
Bíða 650 til 900 Húsvíkingar og nærsveitamenn eftir starfi hjá álverinu á Bakka? Eru mörg hundruð höfuðborgarbúar á leiðinni norður í álver. Svarið er í báðum tilvikum nei. Sama svar á að gefa við hlussufabrikkum sem fá niðurgreitt rafmang frá veitum í eigum almennings.
Það verður að stöðva tilraunir til að endurnýja ruglatvinnulíf útrásarinnar. Þeir sem fara með forráð almannavaldsins eiga að hafa í huga að atvinnulíf á að vera fyrir íbúa landsins en ekki bullukolla sem flytja inn ódýrt erlent vinnuafl og búa til hagbólu.
Byggjum atvinnulífið á rekstri sem hentar okkar aðstæðum.
![]() |
Framkvæmdir á Bakka gætu skapað 650-900 störf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)