Föstudagur, 30. apríl 2010
Síma -Tóti í stjórn Exista?
Einu sinni var flokksgæðingur sem stútað lífeyrissjóði á Vesturlandi en fékk að launum forstjórastól í fjarskiptafyrirtæki sem var í eigu ríkisins. Hann launaði trúnaðinn með því að skrifa á fjarskiptafyrirtækið kostnað við að koma sér upp sumarbústað og tilbehör.
Forstjórinn lét það verða sitt síðasta verk áður en hann varð að skila kreditkorti fjarskiptafyrirtækisins sökum spillingar að fylla tankinn á jeppanum.
Síma-Tóti er vonandi ekki kominn á kreik aftur til að maka krókinn á kostnað almennings?
![]() |
Ný stjórn kjörin í Exista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 30. apríl 2010
Peningaprentun Jóns Ásgeirs
Eignir Baugs í útlöndum eru samkvæmt Jóni Ásgeiri Baugsstjóra peningaprentsmiðjur sem munu stoppa upp í Icesave-gatið, en það mun hlaupa á 400-800 milljörðum króna. Pennalipurð Jón Ásgeirs lætur ekki að sér hæða.
Ef Jón Ásgeir átti ígildi peningaprentsmiðju í útlöndum hvers vegna þurfti hann að ræna íslenska banka innan frá?
![]() |
Eignir Baugs skila verðmætum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 30. apríl 2010
Björgólfur Thor er trúr sínu
Björgólfur Thor skilur ekki siðferðishugsun almennings vegna þess að hann lifir í öðrum heimi. Í veröld Björgólfs Thors trompa peningar allt siðferði. Maður með fjármuni þarf ekki siðvit aðeins tungulipurð og slægð.
Í gagnaversmálinu sýndi Björgólfur Thor slægð þegar hann tók höndum saman við peningamann úr röðum Samfylkingar, Vilhjálm Þorsteinsson. Tungulipurð heitir það þegar Björgólfur Thor, sem veit ekki skulda sinna tal, fullyrðir að hann ætli að standa við allar sínar skuldbindingar. Þjóðin veit um Björgólfana tvo og Icesave. Meira þarf ekki að segja.
Björgólfur Thor finnur fífl á Íslandi til að beita fyrir vagn sinn. Þau fífl verða skilin eftir í foraðinu en Björgólfur hirðir sitt enda trúr sínu.
![]() |
Skilur réttláta reiði almennings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 30. apríl 2010
Þjóðstjórn er samstaða um spillingu
Við sérstakar aðstæður neyðar og yfirvofandi hörmunga er þjóðstjórn réttlætanleg. Þær aðstæður eru ekki uppi núna. Umræður stjórnmálaflokka um þjóðstjórn undirstrika þrekleysi flokkanna við að axla ábyrgð á hruninu.
Þjóðstjórnarhugmyndir eru settar fram til að skapa samstöðu hjá stjórnmálaelítunni um óbreytt ástand. Krafa almennings er að stjórnmálaflokkar geri hreint fyrir sínum dyrum og þeir stjórnmálamenn víki sem eru löðrandi í útrásarspillingu.
Stjórnmálaflokkar eru ríkisrekin félög til að standa fyrir umræðu um landsins gagn og nauðsynjar jafnframt sem þau eru vettvangur þar sem fulltrúar almennings eru valdir í trúnaðarstöður. Þeir sem fara fyrir stjórnmálaflokkum landsins ættu að hafa þetta í huga. Þjóðstjórn er þöggun á umræðu og kippir fótunum undan rökum fyrir ríkisstyrkjum til stjórnmálaflokka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)