Miðvikudagur, 14. apríl 2010
Kratafrjálshyggja fjármögnuð með útrásarauð
Þór Saari benti á það í Kastljósi kvöldsins að Samfylkingin gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn Geirs H. Haarde í því skyni að auka útrásina og einkavæða áfram. Kratafrjálshyggjan tröllríður húsum í Samfylkingunni og þykir fara vel með Evrópusambandsáherslum.
Á Eyjunni kemur fram að útrásarfyrirtækin voru svo ánægð með kratafrjálshyggju Samfylkingarinnar að stjórnmálamenn flokksins fengu hvaða mesta fjármuni. Bragð er að þá barnið finnur.
Í hrunskýrslunni er staðfest að Samfylkingin notaði nokkrar kennitölur til að fela styrki frá útrásarfyrirtækjum.
Allt ber að sama brunni; Samfylkingin yfirbauð frjálshyggju Sjálfstæðisflokksins með kratafrjálshyggju.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 14. apríl 2010
Baugsmaður formennskukandídat Sjálfstæðisflokksins
Hrunverjadeild Sjálfstæðisflokksins krefst afsagnar Bjarna Benediktssonar formanns og styður Þorstein Pálsson til formennsku í flokknum. Þorsteinn var ritstjóri Baugsmiðla og lagði nafn sitt og orðspor undir þegar hann sagði Jón Ásgeir minnihlutaeiganda Fréttablaðsins og að hann hefði áhrif eftir því.
Hrunverjadeild Sjálfstæðisflokksins hefur hreiðrað um sig hjá leifunum af Baugsveldinu. Í þessum hópi eru Ari Edwald forstjóri Baugsmiðla og Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins. Aðrir í deildinni eru Þór Sigfússon glæpsamlega snjall forstjóri Sjóvá, Sveinn Andri Sveinsson lögmaður glæpamanna og Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður sem hafði milligöngu um mútufé til Sjálfstæðisflokksins frá útrásarauðmönnum.
Sveinn Andri krefst fyrir hönd hrunverja afsagnar Bjarna Benediktssonar. Jafnframt að Illugi Gunnarsson þingmaður, sem er hægri hönd Bjarna, víki vegna stjórnarsetu í Sjóði 9 hjá Glitni.
Baugslýðveldið er í burðarliðnum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 14. apríl 2010
Háskólar í klappstýruhlutverki
Viðskiptadeild Háskóla Íslands efndi til sérstakrar rannsóknaáætlunar um útrásina þar sem menn gáfu sér fyrirfram að útrásin væri heilbrigð viðskipti. Háskólinn í Reykjavík var fjármagnaður af útrásarauðmönnum.
Háskólasamfélagið brást meginhlutverki sínu um þátttöku í gagnrýnni umræðu. Háskóli Íslands hefur ekkert lært af útrásarruglinu. Evrópusambandið og umræðan um aðild Íslands fær sömu klappstýrumeðferðina og útrásin.
![]() |
Fundar með rektorum vegna skýrslunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 14. apríl 2010
Finnur skilur glæpamenn
Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Arion banka mylur undir útrásarauðmennina sem rændu banka innan frá á útrásarárunum. Fréttir um að Finnur sé grunaður maður vegna starfa sinna sem forstjóri Icebank renna stoðum undir þá kenningu að hann skilji glæpamenn og sé næmur á þarfir þeirra.
Finnur er bankastjóri í skjóli ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Ríkisstjórnin hvorttveggja í senn leyfir grunuðum mönnum eins og Finni að þjóna sínu eðli og jafnframt að Arion banka leyfist að starfa hér á landi án þess að upplýst sé hverjir eigendur hans séu.
Ríkisstjórnin heykist á því að setja lög um gagnsæi fjármálastarfsemi og lætur menn eins og Finn Sveinbjörnsson stýra banka.
Það eru fleiri en Finnur sem skilja glæpamenn og þarfir þeirra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)