Mánudagur, 12. apríl 2010
Siðleysingjarnir meðal vor
Á morgun rennur upp nýr dagur bankaviðskipta. Stjórnendur endurreistra banka verða að taka ákvörðun um hvort þeir eigi að halda áfram að þjónusta auðmennina sem keyrðu bankakerfið í þrot haustið 2008.
Hrunskýrslan tekur af öll tvímæli að eigendur gjaldþrota bankanna rændu þá innan frá. Það er ótækt að þessir þjófar fái fyrirgreiðslu til að halda áfram rekstri í einu eða öðru formi.
Arion banki og Landsbankinn viðhalda hugmyndafræði siðleysis með því að veita auðmönnum föllnu bankanna fyrirgreiðslu.
Hingað og ekki lengra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 12. apríl 2010
Brandaraafsögn Björgvins G.
Björgvin G. Sigurðsson segir af sér sem þingflokksformaður Samfylkingar og Jóhanna Sig. segir í ræðustól á alþingi að það sé að axla ábyrgð. Afsögin er brandari. Þingflokksformennska í Samfylkingunni er tildur sem engu skiptir.
Björgvin G. axlar ábyrgð með því að segja af sér þingmennsku.
Samfylkingin ber ábyrgð á viðskiptaráðherranum fyrrverandi.
![]() |
Björgvin stígur til hliðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 12. apríl 2010
Pólitískar hreinsanir eftir hrunskýrslu
Stjórnmálin bera ekki aðalábyrgð á hruninu, það gera útrásarauðmennirnir. Endurreisn stjórnmálanna er á hinn bóginn nauðsyn eftir hrunskýrsluna. Það verður á vettvangi stjórnmálanna með lagabreytingum, nýjum vinnubrögðum og ekki síst nýju siðferði sem endurreisn þjóðlífsins fer fram.
Til að stjórnmálin geti staðið undir verkefninu sem bíður verða að fara fram pólitískar hreinsanir. Tveir áfangar eru á nauðsynlegum hreinsunum. Í fyrsta lagi eiga starfandi stjórnmálamenn að axla ábyrgð með afsögn. Í þessum hópi eru til dæmis Björgvin G. Sigurðsson þingflokksformaður Samfylkingar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Í öðru lagi þarf að efna til alþingiskosninga hér á landi ekki síðar en næsta haust. Fyrir kosningar er raðað á lista framboða og þar verður endurnýjun. Við kosningar verður til stjórnmálaumræða sem þjóðin þarf á að halda eftir að hafa metið hrunskýrsluna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 12. apríl 2010
Bankar stjórnuðu landinu, glæpamenn bönkunum
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var ákveðin fyrir kosningarnar 2007, enda ríkisstjórnin uppnefnd Baugsstjórnin. Niðurstaða lýðræðislegra kosninga var aukaatriði.
Útrásarauðmenn stjórnuðu fjölmiðlum og áttu greiða leið inn í stjórnmálaflokkana. Rökstuddur grunur var um þessa tilhögun mála
Skýrsla rannsóknarnefndar alþingis staðfestir að glæpamenn stjórnuðu bönkunum. En það vissu allir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 12. apríl 2010
Breytist Ísland kl. 10:20 í dag?
Skýrsla rannsóknanefndar alþingis verður mörgum tækifæri til að endurnýja kynnin við stemmningu hrunsins hálfu öðru ári eftir. Öðrum verður skýrslan staðfesting á rökstuddum grun. Enn öðrum almælt tíðindi.
Kannski að við lærum eitthvað af þessu.
![]() |
Fundur hafinn með nefndinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)