Sunnudagur, 7. mars 2010
Ríkisstjórn í afneitun
Þjóðin hafnaði lögum ríkisstjórnarinnar um Icesave og forsenda til að fá betri samninga er að ný ríkisstjórn taki við völdum. Jóhanna Sig. og Steingrímur J. láta eins og þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið markleysa. Skötuhjúin telja sig hafi yfir vilja þjóðarinnar.
Helsta röksemd leiðtoga stjórnarinnar fyrir áframhaldansi setu er að ekkert betra sé í boði. Drambið sem kemur fram í röksemdinni er lýsandi fyrir stjórnunarstíl Jóhönnu og Steingríms J. Þau þykjast vita betur en allir aðrir. Icesave-málið sannar hið gagnstæða.
Við þessar aðstæður á að boða til kosninga. Þjóðin þarf að velja á ný þingmenn sem hún treystir til að fara með sín mál.
Ríkisstjórn með afgerandi vantraust þjóðarinnar á bakinu getur ekki setið eins og ekkert hafi í skorist.
![]() |
Ríkisstjórnin þarf að þétta raðirnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 7. mars 2010
Ígildi valdaráns sitji stjórnin áfram
Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. er heiladauð í innanlandspólitíkinni og markleysa erlendis. Til að hægt sé að ná betri samningu við Breta og Hollendinga verður ríkisstjórnin að segja af þér. Eftir þjóðaratkvæðið verður erlendis litið á áframhaldandi setu ríkisstjórnarinnar sem ígildi valdaráns.
Íslenskur almenningur hefur sagt álit sitt á stjórninni, níu af hverjum tíu hafna aðalmáli stjórnarinnar, en samt ætlar stjórnin að sitja áfram. Í lýðræðisríki eiga hlutirnir ekki að ganga svona fyrir sig.
Ríkisstjórnin verður að horfast í augu við kaldan veruleikann og segja af sér.Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 7. mars 2010
Ríkisstjórn án umboðs
Meirihluti þjóðarinnar mætti á kjörstað og hafnaði með afgerandi hætti lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar um Icesave. Þar með hefur þjóðin tekið tilbaka umboð sitt til meirihluta alþingis til að fara með mikilsvert mál þjóðarinnar.
Ríkisstjórninni ber þegar í stað að segja af sér enda orðið fyrir niðurlægjandi ósigri. Hvaðeina sem ríkisstjórnin tekur sér fyrir hendur er markleysa enda staðfest og sannanlegt að hún hefur ekki umboð þjóðarinnar.
Eymdarganga ríkisstjórnarinnar er á enda. Við munum ekki sakna hennar enda var hún getin við nauðgun og haldið saman með ofbeldi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)