Byr er glæpafélag

Byr var búinn til að fela glæpi eigenda sinna. Frétt RÚV í kvöld staðfestir grun um óhreint mél í pokahorni Byrs. Nokkrir græðgishákarlar settust að sparisjóðum og klófestu þá, með dyggri aðstoð innherja.

Byr er kórónan á græðgisverki auðmannanna og á að fara lóðbeint á hausinn. 

Stjórnvöld sem svo mikið sem velta fyrir sér að halda lífinu í þessu afstyrmi af sparisjóði eru úti að aka.

 


Stjórnmálaalkinn Steingrímur J.

,,Við skulum taka hvern dag fyrir sig," sagði Steingrímur J. á blaðamannafundi í dag. Óvirkir alkar temja sér sama lífsviðhorf; einn þurr dagur í senn, langtímaáætlun kemur seinna.

Völd eru áfeng og vandabindandi eftir því. Steingrímur J. fórnaði sannfæringu sinni til að ná þeim, þegar hann samþykkti ESB-umsóknina, og hann var þess albúinn með Icesave-samningum að veðsetja fjárhagslega framtíð þjóðarinnar til að halda völdunum.

Þegar Steingrímur J. er á þröskuldi niðurlægjandi ósigurs í þjóðaratkvæðagreiðslu horfist hann í augu við ofneyslu valdanna ætlar hann að taka sér taki. Fyrsti dagur: Biðjast lausnar sem fjármálaráðherra.


mbl.is Hvað á Steingrímur við?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama fólkið styður Icesave og ESB-aðild

Samfylkingin eins og hún leggur sig styður Icesave-frumvarpið sem þjóðin ætlar að fella á morgun í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hrunverjaklíkan í kringum Baugsmiðla styður einnig Icesave-frumvarpið. Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins tekur til máls fyrir hrunverja í leiðara í dag.


AMX-vefurinn gerir málflutningi Ólafs góð skil. Ólafur hefur stutt Icesave-gjörninginn alla leið, frá upphaflegum samningi Svavars Gestssonar í sumar. Stuðningsmannalið óbilgjarnra krafna Breta og Hollendinga vill sjá þjóðina á hnjánum.

Samfylkingin og hrunverjar telja að þjóð á hnjánum sé líkleg til að samþykkja ESB-aðild. Tilgangurinn helgar meðalið.


Jóhanna þykist hafin yfir lýðræðið

Æ betur kemur í ljós hvers konar mistök það voru að dubba frekan félagsmálaráðherra upp í stól forsætisráðherra. Jóhanna hafði það eitt til síns ágætis að vera heiðarleg. En á bakvið heiðarleikann leynast takmarkanir sem gera forsætisráðherra að fjarska litlum stjórnmálamanni.

Atkvæðagreiðslan á morgun er ekki um Icesave-frumvarpið, sem löngu úrelt. Nei, fólk mætir á kjörstað á morgun til að lýsa yfir andstöðu við óbilgirni Breta og Hollendinga. Icesave-reikningarnir voru með evrópskri ábyrgð en Bretar og Hollendingar láta eins og íslenskur almenningur hafi gert út á grunlausa breska og hollenska sparifjáreigendur.

Væri Jóhanna í tengslum við þjóðina myndi hún fyrir löngu hafa áttað sig á hverjum klukkan glymur í þjóðaratkvæðinu á morgun. En blessunin hún Jóhanna er heiðarlegur eintrjáningur hvers tími er löngu liðinn.

Jóhanna á skilið rólegri daga og ætti að nýta tímann heima á morgun til að panta viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson, sem, vel að merkja, kann pólitík.


mbl.is Jóhanna ætlar ekki á kjörstað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband