Miðvikudagur, 31. mars 2010
Þingskjalið sem vantar
Eitt þingskjal vantar í þann bunka sem alþingi tekur til afgreiðslu í vor. Ályktun um að alþingi feli ríkisstjórninni að draga tilbaka umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Þjóðin er staðföst í afstöðu sinni til þess að ganga ekki í Evrópusambandið.
Samfylkingin einn flokka vill aðild - en flokkurinn fékk 29 prósent atkvæða í síðustu kosningum.
Það er bæði skaðlegt inn á við að halda umsókninni til streitu og ekki síður í samskiptum okkar við Evrópusambandið. Í Brussel er mönnum ekki skemmt þegar hugur fylgir ekki máli hjá umsóknarþjóðum.
![]() |
Á níunda tug þingskjala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 31. mars 2010
Væg skilyrði Samkeppniseftirlits
Skilyrðin sem bönkum eru sett af Samkeppniseftirliti eru of væg. Munar mestu um að Samkeppniseftirlitið er ekki tilbúið að bæta fyrir mistök undanfarinna ára þar sem samþjöppun á markaði var látin átölulaus.
Samkeppniseftirlitið á vitanlega að krefjast þess að yfirtekinn rekstur eigi að brjóta upp til að stuðla að samkeppni.
Samkeppniseftirlitið þarf að undirstrika að nýspilling endurreistra banka og gömlu útrásarviðrinanna verði ekki liðin.
![]() |
Setja skilyrði fyrir yfirtöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 31. mars 2010
ASÍ hótar ríkisstjórn og nær árangri
ASÍ boðaði til formannafundar fyrir tveim dögum og eftirfarandi er upphafsmálsgrein í fréttatilkynningu ASÍ um fundinn
Formannafundi Alþýðusambandsins um efnahags og atvinnumál lauk á Grand hótel síðdegis.Áhyggjur vegna stöðu atvinnumála var áberandi á fundinum og var þungt í mönnum. Framtaksleysi ríkisstjórnar og sveitarfélaga varðandi stærri framkvæmdir voru harðlega gagnrýnd.
Hótun ASÍ dugði til að ríkisstjórnin lúffaði í þrem málum.
Augljóst er hvaða tökum á að taka ríkisstjórn Jóhönnu Sig.
![]() |
Samkomulag um þrjú mál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 31. mars 2010
Baugslygi, ríkisbankar og nýspillingin
Í Fréttablaðinu í dag er haft eftir eiginkonu Jóns Ásgeirs Baugsstjóra að hlutafé upp á einn milljarð króna sé komið í 365 miðla. Eiginkonan, sem varð að taka að sér að vera andlit 365 sökum þess að Jón Ásgeir er dæmdur maður, neitar að gefa upp hverjir séu hinir nýju hluthafar.
Út á þessa lygi eiginkonunnar ætlar Jón Ásgeir að fá fyrirgreiðslu hjá Landsbankanum, sem er ríkisbanki. Á hinum enda nýspillingarinnar er Arion banki að moka fé og fyrirgreiðslu til Haga, sem er gamla verslunarveldi Jóns Ásgeirs. Leppur Jóns Ásgeirs í Högum er Jóhannes faðir hans.
Rekstrarfé sem Baugsfamilían fær frá Arion til Haga er notað til að kaupa auglýsingar hjá 365-miðlum. Það er auglýsingafé sem myndar fjármuni sem eiginkonan kallar hlutafé og sýnir spillingarvinveittum Landsbankamönnum.
Svínarí Baugsliðsins er landsþekkt og komið í sögubækur hrunsins. Nýspilling bankamannanna er að skríða úr holræsinu.
![]() |
Frestur 365 hjá NBI rennur út á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)