Einangrun elur á örvæntingu

Samfylkingin er einangruð í íslenskum stjórnmálum og þeim fækkar óðum sem vilja halda í illa þokkaða stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Forsætisráðherra heggur í sama knérunn og kennir vinstri grænum um ófarir stjórnarinnar.

Skynsamlegt er af hálfu vinstri grænna að taka ummæli forsætisráðherra formlega á dagskrá þingsflokks. Umræðan varpar ljósi á örvæntingu Samfylkingarinnar.

Íkveikjustjórnmál Samfylkingar verða aðeins upprætt með því að mæta þeim af hörku. Það er Samfylkingin sem er að einangrast. Vinstri grænir eru í góðum málum.


mbl.is VG ræðir ummæli forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Egill og samfylkingartextinn um Davíð

Samfylkingartextinn um Davíð Oddsson er skrifaður upp á ensku af Agli Helgasyni. Stefið er gamalkunnugt um drottnunarvald Davíðs og hvernig hann sat yfir hlut manna og handvaldi þá sem máttu efnast á Íslandi.

Eitt smáatriði vantar til að samfylkingartextinn gangi upp: Fórnarlömbin.

Ef Davíð bjó yfir ógnarvaldi og ekki skirst við að beita því ættu að vera til óteljandi sögur um menn sem urðu fyrir barðinu á honum.

Samfylkingarversið heldur Jóni Ásgeir og föður hans á lofti sem fórnarlambi Davíðs. En þeir feðgar urðu óvart milljarðamæringar einmitt á valdatíð Davíðs.

Samfylkingartextinn um Davíð er pólitískur spuni.

 


Þjóðnýting bílalána

Fjármálastofnanir sem lánuðu bílalán leita að leiðum til að lágmarka tapið en jafnframt finna sanngjarna afskriftaleið. Samfylkingin og félagsmálaráðherra, Árni Páll Árnason, hóta lagasetningu ef afskriftir verða ekki eftir forskrift ráðherra.

Hættan er sú að bílalánin verði þjóðnýtt með því að skattfé fari í að niðurgreiða lánin.

Og þegar bíleigendur eru búnir að fá sitt koma fasteignalántakendur og vilja sitt.

 

 


Bloggfærslur 28. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband