Þriðjudagur, 16. mars 2010
Arion, siðvit og fjármálalæsi
Ólæsi á fjármál er léttvægur vandi í samanburði við siðleysið sem Arion banki hefur í frammi með því að afskrifa skuldir auðmanna en halda heimilum í heljargreipum. Arion banki veitti Ólafi Ólafs fyrrum aðaleiganda Kaupþings sérstaka þjónustu til að halda Samskipum og sami banki undirbýr að færa Baugsfeðgum verslunareinokun á silfurfati.
Arion neitar hins vegar að upplýsa alþingi hvað bankinn treystir sér til að fella niður af skuldum almennings.
Vandi Arion banka er siðferðið. Bankinn ætti að kaupa námskeið um siðvit handa Finni Sveinbjörnssyni bankastjóra og samverkamönnum hans.
![]() |
Arion banki styrkir fjármálalæsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 16. mars 2010
Auðmenn, meðhlauparar og skýrslan
Hrunskýrslan væntanlega skiptir þjóðinni í tvær fylkingar þegar kemur að mati á niðurstöðu. Í fyrsta lagi er það meginþorri þjóðarinnar sem telur réttilega að auðmannagengið beri mesta ábyrgð á hruninu en þar á eftir stjórnsýslan, stjórnmálamenn og embættismenn, sem ekki reistu skorður við óhófi og yfirgangi útrásarauðmanna.
Í öðru lagi eru það auðmennirnir sjálfir og meðhlauparar þeirra sem rembast við að kenna stjórnvöldum almennt og Davíð Oddssyni sérstaklega um hrunið. Þessi hópur er lítill en hávær enda eru þar á fleti samfylkingarmenn, baugsmenn, hrunverjar úr röðum sjálfstæðismanna og margverðlaunaðir blaðamenn eins og reynir trausta og jóhann hauks.
Góða skemmtun.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 16. mars 2010
Hvatakerfið og útrásarillgresið
Bankarnir urðu leiðandi í útrásinni sökum þess að þeir voru í lykilhlutverki hvorttveggja sem milligönguaðilar og gerendur. Bankarnir tóku við innlánum almennings og mokuðu fjármunum í útrásarhítina oft með engum tryggingum.
Ábyrgðarleysi stjórnenda bankanna var algjört en vegna hvatakerfis fengu þeir ríkulega umbun fyrir að brenna peningum annarra.
Að bankamönnum detti í hug að setja á flot tillögur um bónusa sýnir að þeir gera sér enga grein fyrir ábyrgð sinni.
Illgresi útrásarinnar er ekki enn upprætt. Ríkisstjórnin ber ábyrgð á þeim vettlingatökum sem útrásarliðið er tekið.
![]() |
Fulltrúar bankanna spurðir út í bónuskerfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)