Arion hvetur til lögbrota

Arion banki verðlaunar þá sem komu landinu á kúpuna. Sérstaklega fá þeir sem sannanlega brutu lög forgangsmeðferð hjá Arion. Ólafur Ólafs setti Kaupþing á hausinn  og er grunaður maður. Hann fær með aðstoð Arion að halda Samskipum.

Jón Ásgeir hlaut dóm í Baugsmálinu og Hagar eru dæmdir fyrir að brjóta samkeppnislög. Arion ætlar að fær Jóni Ásgeir og Jóhannesi föður hans Haga á silfurfati.

Ef til væri formlegur félagsskapur fjársvikara og fjárglæframanna myndi Arion vera viðskiptabanki þeirra.


mbl.is Úrskurður um sekt Haga stendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinátta og aumingjagæska

Sjálfstæðir Evrópumenn, Benni Jóh et. al., Egill Helga og fleiri tefla fram þeim rökum fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu að við eigum enga vini. Vináttan sem falast er eftir heitir aumingjagæska. Útlendingar eiga að sjá aumur á okkur.

Nágrannar okkar sáu fyrr og skýrar að íslenska efnahagskerfið var á leið fram af bjargbrúninni. Útrásarbullið varð að fá rökrétta niðurstöðu, sem er efnahagslegar hörmungar. Við eigum eftir að skrifa síðasta kaflann, sem er uppgjörið.

Eftir uppgjörið eigum við vísa vináttu bræðraþjóða okkar í Færeyjum og Noregi og urðum reyndar strax eftir hrun aðnjótandi færeyskrar vinsemdar sem lánuðu okkur skilyrðislaust.

Vináttan sem er í boði í Brussel er einskins virði vegna þess að hún er orðin tóm. Skilningur er forsenda vináttu. Í augum Brussel erum við sniðugir geirfuglar sem fóru sér í voða.


Arion og svikamylla Baugsfeðga

Baugsfeðgar reka sömu svikamylluna og þeir gerðu á tímum útrásar. Í boði Arion banka stýra þeir verslunarveldinu Högum. Auglýsingafé frá Högum stendur undir fríblaðsútgáfu Fréttablaðsins. Ritstjórn blaðsins er aftur ráðin til að stunda almannatengslavinnu fyrir Baugsfeðga, sverta andstæðinga þeirra og hefja á loft hagsmuni feðgana.

Útrásin var jafn tryllt og raun ber vitni vegna þess að fjölmiðlar voru á mála útrásarauðmanna.  Efasemdir um innistæðu útrásarinnar komust hvergi að, hvað þá gagnrýni. Viðhald á sömu svikamyllu er tilræði við endurreisnina eftir hrunið. Arion banki vinnur skemmdarverk á því samfélagi sem bankinn á í orði kveðnu að þjóna. 

Arion banki er óðum að verða samnefnari fyrir siðblindu.


mbl.is Hagar auglýsa nær einungis í Fréttablaðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brussel sýnir Samfylkingunni gula spjaldið

Skilaboð Wallis varaforseta Evrópuþingsins um vandaða þjóðfélagsumræðu áður en sótt er um verða ekki skilin öðruvísi en aðvörun til Samfylkingarinnar um að flokkurinn hafi rasað um ráð fram þegar umsókn var send til Brussel án stuðnings þjóðarinnar.

Evrópusambandi hefur engan áhuga á málamyndaumsókn frá ríki sem ekki hefur sannfæringu fyrir inngöngu. Íslendingar upp til hópa vilja ekki inngöngu enda hverjum manni ljóst sem ekki er samfylkingarmaður eða illa gerður (fer þó oft saman) að Evrópusambandið er félagsskapur sem ekki hentar okkur.

Samfylkingin er að brotna enda sést skelfingarblandin örvænting á svip fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar sem sat fund Wallis.


mbl.is Tækifæri til að móta stefnu ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband