Mánudagur, 1. febrúar 2010
Björgólfsvæðing Samfylkingar
Björgólfur yngri er með Samfylkinguna í hendi sér. Gagnaverið sem aðalábyrgðarmaður Icesave-reikninganna hyggst reisa á Suðurnesjum fær hverja stuðningsyfirlýsinguna á fætur annarri frá forkólfum Samfylkingarinnar.
Aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, Hrannar B. Arnarsson, sagði um Björgólfsfjármuni að sama væri hvaðan gott kæmi. Skúli Helgason formaður iðnaðarnefndar alþingis efndi til leikfléttu um áramótin þar sem útkoman átti að vera sú að hlutur Björgólfs yngri i framkvæmdinni yrði minni en til stóð. Fléttan minnir á leikrit Ólafs Ólafssonar í Kaupþingi með arabíska furstann.
Í dag björgólfast Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra sem skrifar Pressupistil um nauðsyn þess að maðurinn með Icesave-slóðann fái skattalega sérmeðferð hjá ríkissjóði í boði Samfylkingarinnar.
Samfylkingin verður seint sökuð um að vera næm á réttlætiskennd almennings.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 1. febrúar 2010
Fjármálaeftirlit eða Seðlabanki, feigur og ófeigur
Ríkisstjórnin og eftirlitsstofnanir voru milli steins og sleggju í aðdraganda hrunsins. Bankarnir voru orðnir alltof stórir til að hægt væri að bjarga þeim, enda reknir af mönnum sem lítt kunnu til verka og áhættusæknir úr hófi fram. Enginn þorði að segja upphátt það sem margur óttaðist og sumir gerðust meðvirkari en nauðsyn var og fegruðu ljóta ásýnd íslensku bankanna.
Fjármálaeftirlitið heyrði undir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og núverandi þingmann Samfylkingar. Í Seðlabankanum sat Davíð Oddsson.
Umræðan um ábyrgð og sekt í aðdraganda hrunins er með mörgum blæbrigðum.
![]() |
Talaði ekki um Seðlabankann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 1. febrúar 2010
Vænn maður genginn
Steingrímur Hermannsson tók að iðka golf kominn af léttasta skeiði og henti gaman að því að það mætti bæta sig með ástundun. ,,Strákarnir sem ég spila með bæta sig samt hraðar," sagði hann og glotti.
Ég kynntist Steingrími í stjórn Heimssýnar en þar átti hann sæti í nokkur ár. Marga fundina sótti hann heima hjá Ragnari Arnalds sem þjónaði sem skrifstofa og fundarsalur.
Steingrímur var tillögugóður og andófið gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu var honum hjartans mál.
Blessuð sé minning Steingríms Hermannssonar.
![]() |
Steingrímur Hermannsson látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. febrúar 2010
Forsetinn afhjúpar umboðsleysi Samfylkingar
Samfylkingin er umboðslaus flokkur sem keyrði lágkúrulega kosningabaráttu - ESB leysir okkar vanda - og knúði samstarfsflokkinn til að svíkja kjósendur sína. Ríkisstjórn Samfylkingar gerði ömurlegustu milliríkjasamninga lýðveldistímans og reyndi með lygum og blekkingum að lauma samþykkt þeirra í gegnum alþingi.
Með því að vísa Icesave-frumvarpi til þjóðarinnar afhjúpar forsetinn umboðsleysi Samfylkingarinnar svo undan svíður.
![]() |
Taktu leikhlé, herra forseti" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 1. febrúar 2010
Þýskir úr evrusamstarfi?
Grikkir þurfa á stórfelldri efnahagsaðstoð að halda. Tvær leiðir koma einkum til greina. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn gæti tekið landið í sína umsjá, líkt og Ísland, Lettland og Ungverjaland eða að Evrópusambandið hósti þeim fjármunum upp sem til þarf.
Grikkland er evruland, ólíkt Lettlandi og Ungverjalandi, og af þeirri ástæðu vill ESB síður hleypa Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að efnahagskerfi landsins. Þar með væri evru-samstarfið komið að nokkru leyti í umsjá sjóðsins.
Á hinn bóginn er eins víst að ef ESB borgar Grikkjum koma Portúgal, Spánn og jafnvel Ítalía í kjölfarið og vilja fá sambærilega þjónustu. Jafnvel djúpir vasar Þjóðverja standa ekki undir þeim útgjöldum.
Evans-Pritchard blaðamaður Telegraph kemur með nýstárlega kenningu í þessu samhengi: Að Þjóðverjar leyfi óreiðuríkjum álfunnar að eiga evruna og komi sér upp þýsku marki.
Hugmynd Evans-Pritchard er langsótt en sýnir þunga undiröldu í Evrópusambandinu vegna óreiðuríkjanna í suðurhluta álfunnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)