Laugardagur, 4. desember 2010
Össur: Forsetinn bara einhver Íslendingur
Risið á ríkisstjórninni lækkar jafnt og þétt í réttu hlutfalli við fleiri axarsköft og minni tiltrú almennings. Samfylkingarráðherrar fara fyrir niðurlægingu ríkisstjórnar lýðveldisins og þar er utanríkisráðherra í sérflokki. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ber höfuðábyrgð á sneypuförinni til Brussel og sundurtættu orðspori þjóðarinnar.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti stendur fastur fyrir gegn yfirgangi ESB-þjóða sem halda sig hafa hagsmuni Íslands í hendi sér þegar við liðleskjur eins og Össur er að eiga. Í stað þess að þakka forsetanum að standa í ístaðinu sendi Össur þessa kveðju á visir.is
Það þvælist ekki fyrir utanríkisráðherra þó að forseti Íslands hafi skoðanir á málunum. Ef það er einhver Íslendingur sem hefur getið sér orð fyrir það að hafa sterkar skoðanir í gegnum tíðina þá er það nú einmitt forsetinn," segir Össur.
Tónninn sem utanríkisráðherra sendir forseta lýðveldisins er í hæsta máta óviðeigandi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 4. desember 2010
Ósakhæf Samfylking
Samfylkingin lýsti sig ósakhæfa þegar Atlaskýrslan var til umræðu á alþingi í haust og felldi tillögu um að ákæra ráðherra flokksins. Ósakhæfi felur í sér annað tveggja, að sökum bernsku eða fávitaháttar, sé sakborningur undanskilinn ákæru.
Afsökun án afleiðinga er einmitt það sem börn og fávitar gera sig sek um; biðjast afsökunar en halda áfram þeirri iðju sem beðist var forláts á.
Í afsökun flokksstjórnar Samfylkingarinnar í dag þarf að fylgja útskýring hvort flokkurinn lítur á sig sem barn eða bjána.
![]() |
Samfylkingin biðst afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 4. desember 2010
Samfylkingin er ljótur Sjálfstæðisflokkur
Samfylkingin er ljótasta spegilmynd Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn dýrkar valdið valdsins vegna og stjórnar í þágu sérhyggju en ekki almannahagsmuna. Tilfærð orð í umbótaskýrslu Samfylkingar staðfesta tilganginn með stofnun flokksins
Sú sýn sem hafi verið ríkjandi hafi veikt flokkinn gagnvart nýfrjálshyggjunni sem réði ferðinni innan Sjálfstæðisflokksins.
Samfylkingin var stofnuð til valdatöku. Flokkurinn tók upp á sína arma einstaklinga sem Sjálfstæðisflokknum bauð við; Jón Ólafsson í Skífunni, Sigurður Einarssonar og Hreiðar Má í Kaupþingi og Jón Ásgeir Jóhannesson í Baugi.
Umbótaskýrslan talar um ,,sýn" Samfylkingarinnar sem hafi verið ríkjandi. Þessi ,,sýn" er valdatæknin sem flokkurinn er ofurseldur.
![]() |
Fylgdu ekki eigin stefnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 4. desember 2010
Samræða Samfylkingar felst í að hóta
Samfylkingin var stofnuð til að þjóna valdsækni vinstrimanna, ekki til að umbylta stjórnmálaumræðunni. Alla sína tíð hefur flokkurinn lagt meira upp úr útliti en innihaldi, skammtímapólitík fremur en langtímasjónarmiðum; taktískum brellum í stað heildarsýnar.
Evrópuvæðing flokksins veturinn 2002 til 2003 var þessu marki brennd. Flokksmenn sem ekki voru aðildarsinnar fengu ekki að tala á almennum fundum um málefnið, búið var að ákveða niðurstöðuna fyrirfram.
Hugsjónalaus valdasækni var einnig ástæða fyrir bandalagi Samfylkingar og Baugs sem kristallaðist í vörn flokksins fyrir hagsmunum auðhringsins í fjölmiðlamálinu þar sem almannahagsmunir voru fyrir borð bornir til þess eins að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn.
Þegar umbótanefnd Samfylkingar ætlar í fundarherferð til að ræða hvað fór úrskeiðis í Samfylkingunni er hætt við að fyrirheit leiðangursins verði ekki efnd. Samfylkingin ætlaði jú að verða flokkur samræðustjórnmála en er fyrst og fremst þekktur fyrir frekjulega hótunarpólitík sem er jafn illa ígrunduð og hún er ósvífin.
![]() |
Afhjúpar veikleika flokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 4. desember 2010
Jóhanna skuldar okkur afsögn
Þingmenn vinstri grænna voru tregir í taumi þegar leiða átti ríkissjóð í skuldaklafa vegna Icesave. Samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið birtir í dag hótaði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra afsögn ef þingmennirnr sættu sig ekki við Icesave-samkomulagið við Breta og Hollendinga um að borga skuldir Landsbankans.
Rétt eins og í ESB-umsókninni kúgaði Jóhanna Sig. nóg marga þingmenn Vg til að gera samþykkt þvert á hagsmuni lands og þjóðar.
Þjóðin hafnaði Icesave-lögum ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. í þjóðaratkvæðagreiðslu og lét sem vind um eyru þjóta hótanir og heimsendaspár Jóhönnu ef ekki yrði farið að vilja hennar. Jóhanna skuldar okkur afsögn sína sem forsætisráðherra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)