Írar hengdir fyrir Evrópu

Í framtíðinni munu bankar ekki komast upp með að velta ábyrgðarlausum lánum yfir á skattgreiðendur, fáist þau ekki greidd af lántaka. Í dag er ekki framtíðin og almenningur á Írlandi verður að borga brúsann fyrir gjaldþrota bankakerfi. David MacWilliams segir Íra hengda fyrir syndir evrópska banka

In order to get to the bottom of what is happening, we have to clear up a few things. First, we have to stop calling it a bailout. This isn’t anything like a bailout. Rather it is the EU giving us enough rope to hang ourselves in the hope that we don’t hang all of them.

Írar geta ekki staðið undir lánum sem þeim er ætlað að greiða. Írar munu ekki láta ósvífnina yfir sig ganga. Til þess eru þeir of líkir Íslendingum.


Lífeyrissjóðir, óreiðuskuldir og samningar

Lífeyrissjóðir eiga ekki að greiða óreiðuskuldir fólks með því að taka þátt í almennri niðurfellingu skulda. Samningar eiga að halda og sá sem tekur lán á að greiða það tilbaka samkvæmt þeim kjörum sem samið var um.

Launþegar eiga lífeyrissjóðina. Það skapar stórhættulegt fordæmi ef stjórnum sjóðanna líðst að fjármagna kosningaloforð stjórnmálaflokka.

Óráðsíunni verður að linna og stjórnvöld verða að hafa hugrekki til að segja hlutina eins og þeir eru: Engar almennar afskriftir skulda standa til boða.


mbl.is Ræða við FME um heimildir sjóðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandaralandið og prósentuöxin

Brussel er höfuðborg Evrópusambandsins og jafnframt tvíríkisins Belgíu sem þykist þjóðríki en þar búa tvær þjóðir, Flæmingjar og Vallónar, og er það engin sæluvist. Belgía er án ríkisstjórnar í fimm mánuði. Í gær hækkaði ávöxtunarkrafa á belgísk ríkisskuldabréf og fór yfir fjögur prósent.

Ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa mælir í meginatriðum tvennt. Í fyrsta lagi vaxtakostnað viðkomandi ríkis og í öðru lagi mat fjármálamarkaða á greiðslugetu þess ríkissjóðs sem gefur úr bréfin. Ávöxtunarkrafa á þýsk ríkisskuldabréf er 2,5 prósent.

Þegar kostnaður ríkja við að fjármagna lán verður margfeldi af kostnaði Þýskalands er hægt að tala um prósentuöxi eins og Telegraph gerir í umfjöllun um stöðu evru ríkja. Prósentuöxin fellur þegar efri sársaukamörkum er náð og ríki kikna undan lánakostnaði. Álitamál er hvort öxin falli við fimm, sex eða sjö prósent.

Þegar prósentuöxin fellur á evrulöndin verður skilið á milli bols og höfuðs á öðru tveggja; sjálfstæði þeirra ríkja sem hafa evru sem lögeyri, því að Þjóðverjar munu sjá um ríkisfjármálin hér eftir, eða að evran eins og hún þekkist í dag deyi drottni sínum.

Evran drepur sjálfstæði þjóða - eða deyr sjálf. 


Stjórnlagahappadrætti Samfylkingar

Ef varpa þurfti hlutkesti 78 sinnum um  hver skyldi fá hvaða sæti í kosningum til stjórnlagaþings er búið að ómerkja kosningarnar sem meðvitað val þeirra er greiddu atkvæði. Kjörstjórn gefur ekki upp hverjir fengu hvaða sæti með hlutkesti og  hverjir urðu af sætum fyrir tilviljun.

Stjórnarskráin orsakaði ekki hrunið, samt ákvað Samfylkingin að nauðsynlegt væri að breyta stjórnarskránni og boðaði kosningar til stjórnlagaþings. ,,Hönnunin" á kosningunum var slík að aðeins rúmur þriðjungur kosningabærra manna greiddi atkvæði.

Þeir sem létu sig hafa það að greiða atkvæði lesa fréttir um að tilviljun en ekki atkvæði réð því í 78 tilvikum hver fékk hvaða sæti. Og það er ekki gefið upp hverjir áttu í hlut.

Er  hægt að hugsa sér meiri þvætting?


mbl.is Vörpuðu hlutkesti 78 sinnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evran er ástæða kreppu Íra

Opinberar skuldir Íra voru lágar áður en landið gekk inn í evrusamstarfið. Efnahagskerfið var í jafnvægi og skilaði írsku þjóðinni góðri afkomu. Upptaka evru, aftur á móti, leiddi til þenslu og óábyrgrar fjármálastefnu, bæði í einkageiranum og hjá hinu opinbera. Áratuginn fyrir kreppu voru vexti lágir og juku á vandann. Vegna evrunnar var ekki tekið mark á hættumerkjum og engar ráðstafanir gerðar til að vinna gegn bólumyndun.

Á þessa leið greinir blaðamaðurinn Ambrose Evans-Pritchard vanda Íra og byggir á skýrslu Patrick Honohan, gamalreyndum bankamanni sem fenginn var til að aðstoða við endurreisnina.

Val Íra, segir Evans-Pritchard, stendur á milli íslensku leiðarinnar, að láta bankana falla, eða skuldaáþjánar um langa framtíð. 


Bloggfærslur 1. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband