Föstudagur, 12. nóvember 2010
Grínlektor við HA og evrutækt Ísland
Sterkara Ísland, nei ekki fasistasamtök heldur aðildarsinnar, héldu samkomu norðan heiða í dag. Þar sté á stokk Jón Þorvaldur Hreiðarsson lektor við HA og ræddi um ónýta gjaldmiðla eins og krónu og dollar en jafnframt hversu mikilvægt væri að Íslandi yrði evrutækt, samkvæmt Gísla Baldvinssyni.
Jón Þorvaldur hlýtur að fyrirlesa í gríni. Hér eru dæmi um alvarlega þenkjandi menn sem fjalla um evruna og evrusvæðið.
Jeremy Warner viðskiptaritstjóri Telegraph: Trúverðugleiki evrusvæðisins lækkar dag frá degi.
Samuel Brittan dálkahöfundur Financial Times: Evran er ósjálfbær og verður ekki bjargað.
Max Otte þýskur prófessor: Evran verður dauð eftir 4 - 6 ár.
En hvað erum við að spá í hvað útlendingar segja um evruna þegar við eigum heimagerða snillinga á sviðinu?
Föstudagur, 12. nóvember 2010
Stjórnlagaþing gegn flokkastjórnmálum
Ríflega 500 frambjóðendur sem margir eru félagsvanir en fáir úr fremstu röð stjórnmálamanna gerir kosningu til stjórnlagaþings spennandi. Stjórnarskráin átti enga sök á hruninu en þáttur í endurreisninni getur verið að skrifa upp ný drög sem færu í framhaldsumræðu.
Áhuginn sem kemur fram í fjölda framboða staðfestir áhuga á stjórnmálum þótt orðspor atvinnustjórnmálamanna á þingi sé komið niður í svaðið.
Kjörsókn til stjórnlagaþings verður tæplega jafn góð og í almennum kosningum. Stjórnmálaflokkar hafa úr hundruðum milljóna króna að moða til að auglýsa sig og flokksvélar til að starfa fyrir sig.
![]() |
Rúmur helmingur ætlar að kjósa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 12. nóvember 2010
Íraksstríðið, fíflaðir blaðamenn og Össur
Blaðamenn hoppa og skoppa í kringum Össur Skarphéðinsson þessa dagana. Utanríkisráðherra sagðist eiga í fórum ráðuneytisins skjöl sem vörpuðu ljósi á tildrög þess að Ísland komst á lista ,,viljugra þjóða" og studdi þar með innrás í Írak fyrir sex árum.
Í gær kom á daginn að flest skjölin voru ljósrit af blaðagreinum sem embættismenn ráðuneytisins lásu til að glöggva sig á ástandi mála. Össur kom ábúðamikill fram í Sjónvarpsfréttum og sagðist ekki hafa áttað sig fyrr á alvöru málsins. Ef það er mælistika á hversu stórt eða smátt tiltekið mál er hvort Össur fattar eða ekki er jafngott að láta flokksskrifstofu Samfylkingarinnar sjá um fréttamat fjölmiðla.
Á meðan Össur vefur fjölmiðlum um fingur sér í mestu ekki-frétt haustsins kemst utanríkisráðherra upp með að kippa stjórnarskránni úr sambandi þegar honum hentar. Og fjölmiðlar þegja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 12. nóvember 2010
Samfylkingarsetrið í Háskóla Íslands
Baldur heitir maður Þórhallsson varaþingmaður Samfylkingar og prófessor við Háskóla Íslands. Hann fer fyrir deild í Háskólanum sem sérstaklega er beitt í áróðir Samfylkingar fyrir aðlögun Íslands að Evrópusambandinu. Í morgun stýrði Baldur fundi þar sem mættir voru 31 gestur, framsögumenn meðtaldir, til að ræða um norræn samfélög og Evrópusamrunann.
Eitt af viðfangsefnum fundarins er ,,The No movements, public opinion an political parties" eða fullveldishreyfingar, almenningsálit og stjórnmálaflokkar á íslensku. Baldur gætir þess að enginn fulltrúi frá Heimssýn eða fullveldissinni sé á dagskrá.
Til að bíta höfuðið af skömminni talar Baldur sjálfur um afstöðu Sjálfstæðisflokksins til Evrópumála. Ekki nóg að það sé ósvífið, ómálefnalegt og ótækt að aðildarsinninn Baldur útskýri sjónarmið sjálfstæðismanna heldur er heiti erindisins út í hafsauga: ,,The reluctance of the Icelandic conservative Independence Party to participate in European integration." Á landsfundi sínum í sumar samþykkti Sjálfstæðisflokkurinn ályktun þar sem þess er krafist að aðildarumsókn Íslands verði dregin tilbaka. Að kalla það ,,reluctance" eða hik er eins og að segja seinni heimsstyrjöld smáskærur.
Til að gæta jafnræðis verður Háskóli Íslands að hlutast til um að aðrir stjórnmálaflokkar fái sambærilega aðstöðu við skólann og Samfylkingin.
Föstudagur, 12. nóvember 2010
RÚV prinsippvæðist
Eftir lausung útrásar er eftirspurn eftir meginreglum í samfélaginu. Þegar prinsipp eru skilgreind þarf að hugsa málið til enda. Með því að segja að þeir sem hafi fastan póst hjá RÚV, sem starfsmenn og pistlahöfundar, megi ekki starfa fyrir flokkspólitískt málgagn er farin leið hálfvelgju.
Stjórnmálaflokkar eru hagsmunaaðilar í samfélaginu. Aðrir hagsmunaðilar eru fyrirtæki, stofnanir, og félagasamtök. Þau rök halda ekki vatni að pistlahöfundur hjá RÚV verði að afþakka boð um að flytja efni sitt á vettvangi stjórnmálaflokks en það sé allt í sóma að vera á mála hjá banka, almannatengslafyrirtæki eða Samtökum atvinnulífsins.
Prinsippvæðing RÚV er góðra gjalda verð svo lengi sem lágmarkssamkvæmni sé í heiðri höfð.
![]() |
Ósamrýmanleg hlutverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)