Laugardagur, 9. október 2010
Veiðileyfi á útrásarauðmenn
Útrásarauðmenn gerðu atlögu að efnahagskerfi þjóðarinnar aðeins og eingöngu til maka krókinn. Litlu mátti muna að það tækist og Ísland yrði efnahagslegt miðaldaríki. Almennt veiðileyfi er á útrásarauðmennina í þeim skilningi að með öllum tiltækum löglegum ráðum á að freista þessa að koma þeim undir manna hendur.
Pálmi í Fons er einn útrásarauðmannanna. Hann kveinkar sér undan sókn slitastjórnar Glitnis á hendur sér og er að því er virðist algjörlega grunlaus um að vera hataður og fyrirlitinn af þorra manna.
Pálmi í Fons ætti að þakka fyrir að við búum enn í siðuðu samfélagi sem tryggir að sóknin gegn honum er á grunni laga og réttar.
![]() |
Slitastjórn í veiðiferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 9. október 2010
Verkefni en ekki valdataka
Grunnmistök ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. voru að líta á sig sem valdatökustjórn er hefði víðtækt umboð til gerbreytinga á stefnu og stjórnarháttum. Hvorki var að þjóðin veitti slíkt umboð, enda hrunið nýorðið, og eins hitt höfðu hvorugir vinstriflokkanna langtímastefnu. Að því litla marki sem flokkarnir buðu upp á annað en viðbragðsáætlun vísaði framtíðarstefnan í gagnólíkar áttir. Samfylkingin stefndi á Brussel en Vg að fullvalda ríki þar sem forræði helstu mála væri áfram hjá þjóðinni.
Starfsstjórn Jóhönnu Sig. gerði sig mun betur en meirihlutastjórnin sem mynduð var eftir kosningar. Stjórn sem færist of mikið í fang með takmörkuðu umboð hlýtur að rata í vandræði.
Verkefni nýrrar starfsstjórnar er að halda helstu kerfum gangandi, lóðsa fjárlög í gegnum alþingi og grípa til bráðaaðgerða ef þörf krefur. Langtímamál eins og umsóknin um aðild að Evrópusambandinu verða lögð til hliðar.
Kosningar verða dagsettar með tiltölulega löngum fyrirvara, t.d. sex mánuði, þannig að starfandi stjórnmálaflokkum og nýjum framboðum gefist tími að undirbúa málefnaáherslur.
![]() |
Ný verkefnisstjórn taki við völdum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)