Skúrkar stjórna Reykjanesbæ

Árni Sigfússon bæjarstjóri og hirð í kringum hann keyrði Reykjanesbæ í þrot. Á meðan Árni ræður ríkjum er engin von til þess að bæjarfélagið rétti úr kútnum. Árni er rak ríkissósíalisma þar sem þar versta úr kapítalisma og sósíalisma var tvinnað saman og útkoman er eftir því.

Einkavinavæðing, skefjalaus skuldsetning, brask með opinberar eigur, bókhaldsbrellur og annað sem tilheyrir siðlausum stjórnmálum er að finna í ríkum mæli í Reykjanesbæ.

Áður en peningar úr ríkissjóði renna suður með sjó þurfa heimamenn að taka sig á og setja af skúrkana. 


mbl.is Reyknesingar hóta aðgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert traust á alþingi

Ekkert traust er á milli stjórnmálaflokka á þingi eftir hraklegar niðurstöður um ráðherraábyrgð þar sem Samfylkingin hannaði niðurstöðu er fól í sér ósakhæfi ráðherra Samfylkingar. Á þingi verður þrátefli uns meirihlutinn áttar sig á því að engin leið er fær en að kjósa á ný.

Alþingismenn sem fengu umboð fyrir hálfu öðru ári vita í hjarta sínu að við kringumstæður hrunsins getur ekkert umboð almennings varað lengur en nemur fáum misserum. Á tímum uppgjörs er út í bláinn að tala um að kjósendur veiti umboð til fjögurra ára. 

Öll rök hníga til þess að kosið verði í vetur, t.d. í febrúar.


mbl.is Nefndin leggur ekki fram tillögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmiðlun samkvæmt ríkisvaldi

Fjölmiðlar brugðust á útrásartímum vegna þess að auðmenn sölsuðu undir sig fjölmiðla og gerðu þá að málgögnum sínum. RÚV-geldingurinn hoppaði með. Þegar stjórnvöld hugðust koma böndum á samþjöppun fjölmiðlavalds í höndum auðmanna kom til skjalanna fimmta herdeild auðræðisins, Samfylkingin, og kom í veg fyrir lagasetningu.

Þegar ríkisstjórn með Samfylkingu innanborðs hyggst setja lög um fjölmiðlun vekur tortryggni á líkan hátt og  ef brennuvargur semur brunavarnalög.

Með tilkomu netsins er fjölmiðlun frjálsari en hún hefur lengi verið. Fleiri geta stundað fjölmiðlun og þröskuldurinn inn á markaðinn er lægri en hann var.

Frumvarp sem með ákvæði um fjölmiðlastofu og ,,hatursorðræðu" er í ætt við forræðishugsun liðins tíma.


mbl.is Mælt fyrir fjölmiðlafrumvarpi á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband