Þjóðaratkvæði til sáttar

Samfylkingunni hafnaði tillögu á alþingi i júlí 2009 um að fram færi þjóðaratkvæði um hvort Ísland sendi aðildarumsókn til Evrópusambandsins. Án umboðs þjóðarinnar sendi Samfylkingin og þingmenn Vg sem sviku stefnuskrá og kjósendur sína umsókn til Brussel. Afleiðingin var fyrirsjáanleg; umsóknin og aðlögunarferlið að Evrópusambandinu er pólitísk borgarastyrjöld sem yfirgnæfir önnur málefni.

Með þingsályktunartillögu Vigdísar Hauksdóttur og sex annarra þingmanna fær Samfylkingin tækifæri til að bæta fyrir mistökin sumarið 2009 þegar lagt var upp í ESB-leiðangur á fölskum forsendum. Þingmenn Vg ættu að hoppa hæð sína af kæti þar sem þeir geta núna rekið af sér slyðruorðið.

Tillaga Vigdísar Hauksdóttur er til sátta. Ríkisstjórnarflokkarnir ættu að taka útréttri hönd.


mbl.is Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðaratkvæði um ESB-umsókn í nóvember

Þingmenn úr öllum flokkum nema Samfylkingunni standa að þingsályktunartillögu sem lögð er fram í dag um að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um það hvort draga eigi tilbaka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Tillagan er svohljóðandi

Alþingi ályktar að fela dómsmála- og mannréttindaráðherra að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðlögunar- og viðræðuferli Íslands og Evrópusambandsins. Atkvæðagreiðslan fari fram samhliða kosningu til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010.

Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins. Með henni eru Ásmundur Daði Einarsson og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir úr Vg; Pétur H. Blöndal og Árni Johnsen úr Sjálfstæðisflokki; Birgir Þórarinsson Framsóknarflokki og Birgitta Jónsdóttir Hreyfingunni.


Samfylkingarháskólinn og fagnaðarerindið

Eiríkur Bergmann skrifaði Evrópustefnu Samfylkingarinnar og fékk doktorsnafnbót frá varaþingmanni Samfylkingarinnar, Baldri Þórhallssyni. Eiríkur var ráðinn í héraðsháskóla Samfylkingarinnar í Norðurárdal og starfar þar við útbreiðslu fagnaðarerindisins.

Eflaust þykir norsku ríkisstjórninni fengur í greiningu á EES þar sem amenið kemur á eftir efninu.

Þróunarstyrkir til Íslands frá Norðurlöndum taka á sig ýmsar myndir.


mbl.is Fenginn til að vinna úttekt á EES-samningnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórfelldur pólitískur áhugi

500 manns í framboð til stjórnlagaþings sýnir víðtækan og almennan pólitískan áhuga. Gegn þessum áhuga almennings stendur stjórnmálastéttin þar sem atvinnuflokkarnir rotta sig saman í andstöðu við kosningar. Næstu sex vikurnar verður tilraunastarf í grasrótarpólitík þar sem umræðan vinsar út þá sem eiga erindi á vettvang stjórnlagaþings.

Atvinnustjórnmálamenn munu að líkindum skipta sér af á bakvið tjöldin en láta að öðru leyti lítið fyrir sér fara. Á alþingi leggst yfir samstöðudoði enda í gildi þegjandi samkomulag að gera ekkert sem leiðir til þingkosninga.

Eftir kosningarnar til stjórnlagaþings í lok nóvember verður næsta lota tekin á landsmálapólitíkina. Stjórnmálastéttin veðjar á að óróinn í samfélaginu sjatni og atvinnuflokkarnir fái starfsfrið fyrir almenningi. Það er ólíklegt að gangi eftir. Hörmungarframmistaða atvinnuflokkanna í aðdraganda hruns og ekki síst í uppgjörinu er geymd en ekki gleymd.


Bloggfærslur 19. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband