Fimmtudagur, 14. október 2010
Ríkisstofnanir brenna peningum í Fréttablaðinu
Dagblað með innan við 30 prósent ritstjórnarefni er í raun ekki fréttablað heldur auglýsingablað. Auglýsing í Fréttablaðinu, sem er minni en heilsíða, er nær einskins virði þar sem hún drukknar innan um allar hinar auglýsingarnar.
Ríkisstofnanir sem kaupa auglýsingar í Fréttablaðinu kasta peningum á glæ. Ríkisendurskoðun hlýtur að athuga hvernig ríkisstofnanir fara með auglýsingafé sitt og gera kröfu um að óeðlileg sjónarmið liggi ekki þar að baki.
Er það kannski sérstakt markmið ríkisstofnana að halda Fréttablaðinu á floti?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 14. október 2010
Sjálfstæðisflokksþingmaður á leið í Samfylkingu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varð að segja af sér varaformennsku í Sjálfstæðisflokknum vegna afskrifta sem hún naut af lánum frá útrásarbankanum Kaupþingi. Af sólarmerkjum að dæma er hún á leiðinni úr Sjálfstæðisflokknum í Samfylkinguna.
Þorgerður Katrín er styður umsókn Samfylkingarinnar um aðild að Evrópusambandinu, eins og Evrópuvaktin hefur tíundað. Rökin fyrir stuðningi Þorgerðar Katrínar við umsóknina eru heldur klén, svo vægt sé til orða tekið. Hjörtur J. Guðmundsson sallar þau niður
Nú segir Þorgerður að fyrst umsóknin hafi verið samþykkt sé ekkert annað að gera en að klára aðlögunarferlið að Evrópusambandinu. Með sömu rökum, ef rök skyldi kalla, gæti hún haldið því fram að það yrði að sætta sig við skattahækkanir vinstristjórnarinnar vegna þess að þær hefðu verið samþykktar á þingi.
Þorgerður Katrín skilur eftir sig sviðna jörð í Sjálfstæðisflokknum. Hún samdi við vinkonu sína Ingibjörgu Sólrúnu um myndun hrunstjórnarinnar.
Kratar hljóta að fagna heimkomu Þorgerðar Katrínar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 14. október 2010
Kreppa stjórnmálastéttarinnar
Minni kjörsókn og aukin eftirspurn eftir nýjum framboðum staðfestir kreppu stjórnmálastéttarinnar. Hörmungarafgreiðsla alþingis á kærum um ráðherraábyrgð var neistinn sem hleypti af stað fjöldamótmælum við setningu þingsins. Stjórnmálaflokkarnir virðast á hinn bóginn ekki skilja hvað til þeirra friðar heyrir.
Stjórnmálaflokkarnir eru á opinberu framfæri, bein framlög eru um 500 m.kr. á ári auk kostnaðar við þinghaldið. Af þeirri staðreyndi ætti að leiða að flokkarnir axli ábyrgð og efni til uppgjörs vegna hrunsins.
En það er öðru nær. Stjórnmálaflokkarnir eru skálkaskjól fólks eins og Björgvins G. Sigurðarsonar, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem eru löðrandi í útrásarmykju.
Stjórnmálaflokkarnir verða að taka sér taki og efna til uppgjörs innanbúðar.
![]() |
Kjörsókn í vor ein sú dræmasta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 14. október 2010
Baugslögmaður trúnaðarmaður ríkisstjórnar
Baugsveldið er hrunið en ríkisstjórn Jóhönnu Sig. reynir endurlífgun á líkinu. Landsbankinn, sem er ríkisbanki, heldur lífi í Baugsútgáfunni til að ríkisstjórnarflokkarnir hafi málssvara. Í viðkvæma nefnd um erlendar fjárfestingar kýs ríkisstjórnin að setja Helga Jóhannesson lögmann sem var stjórnarformaður Fjárfars en það félag var svikamylla Jóns Ásgeirs Baugsstjóra.
Helgi mun einnig hafa veitt lögfræðilega þjónustu í REI-málinu þegar Jón Ásgeir, Hannes Smára og félagar ætluðu að sölsa til sín orkuauðlindir OR.
Vinstristjórnin hleypir handlangara útrásarauðmanna i lykilstöðu til að meta t.d. erlenda fjárfestingu í orkufyrirtækjum.
Hvaða hagsmunum er ríkisstjórn Jóhönnu Sig. að þjóna? Ekki almannahagsmunum, svo mikið er víst.
Leiðrétting kl. 8:55
Í símaskránni eru tveir lögfræðingar sem báðir heita Helgi Jóhannesson. Annar þeirra er með baugsferil en hinn ekki. Mér sýnist ég hafa ruglað þeim saman og biðst velvirðingar á því, sem og óréttmætum ávirðingum á ríkisstjórnina í þessu bloggi.
![]() |
Helgi í nefnd um erlenda fjárfestingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)