Vextir niður, krónan styrkist þrátt fyrir Icesave

Jóhanna Sig. og Steingrímur J. sögðu engar líkur á lækkun vaxta og hvað þá sterkari krónu nema við samþykktum drápsklyfjar Icesave-samningsins. Í gær lækkuðu vextir og í dag styrktist krónan.

Yfirlýsingar og hótanir stjórnarinnar um að landið verði ekki byggilegt nema fallist verði á kröfur Breta og Hollendinga eru dæmi um pólitíska taugaveiklun sem bítur helst þá er gefa sig móðursýkinni á vald.

Jóhanna Sig. og Steingrímur J. biluðu þegar á reyndi. Í stað þess að leggjast á árarnar með þjóðinni tóku þau að sér að vinna fylgi við málstað gömlu nýlenduþjóðanna. 


mbl.is Gengi krónunnar styrktist um 0,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öskjuhlíðin, Pálmi og Baugur

Pálmi Haraldsson starfaði hjá Grænmetisfélaginu. Eftir að hann eignaðist félagið, eflaust löglega, átti hann fundi í Öskjuhlíðinni með öðrum heildsölum grænmetis til að ákveða verð til neytenda. Öskjuhliðarsamsærið komst upp og menn voru dæmdir, bæði fyrir dómi og af almenningi.

Öskjuhlíðarreynsla Pálma leidd til áhuga hans á að eignast fjölmiðla, til að stjórna umræðunni. Samstarf hans og Jóns Ásgeirs Baugsstjóra var m.a. um fjölmiðladeildina Fréttablaðið/Stöð 2.

Í hádegisfréttum RÚV í dag sakaði Pálmi bústjóra Fons, sem Pálmi átti fyrir gjaldþrot, að gera ýtrustu kröfur fyrir hönd búsins vegna þess að bústjórinn hefur hag af því að málið dragist á langinn. Pálma svíður að sjá einhvern maka krókinn. Sjálfur er Pálmi strangheiðarlegur og má ekki vamm sitt vita.


mbl.is Pálmi: Öll skilyrði fyrir arðgreiðslu fyrir hendi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðleysi bankamanna

Ólafur Ólafsson er aðalhöfundurinn að leikritinu um arabíska furstann sem ,,keypti" hlut í Kaupþingi kortéri fyrir hrun til að hækka hlutabréfaverð. Ólafur var stjórnarformaður og einn stærsti eigandi bankans. Gjörningurinn er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.

í gær bárust fréttir að Ólafi hafi verið gert kleyft að eignast á ný Samskip sem var grunnurinn að veldi hans. Áður var skipafélagið í eigu samvinnuhreyfingarinnar en Ólafur var hluti af fámennum hópi manna sem sölsaði undir sig eigur félagsmálahreyfingarinnar sálugu.

Arion banki aðstoðaði Ólaf við að leysa til sín Samskip. Bankamenn virðast siðlausir í bókstaflegri merkingu orðsins; þeir hafa enga siði. Bankamenn eru varla svo skyni skroppnir að vita ekki að án siða og siðvitundar virkar samfélagið ekki. Hrunið varð vegna þess að menn eins og Ólafur misþyrmdu illilega meginþáttum siðaðs samfélags, trausti og trúnaði.

Menn eins og Ólafur komast til álna vegna þess að almenningur virðir meginreglur samfélagsins um að samningar skuli standa, helgi eignarréttarins og skilvísi. Ólafur og hans kónar gefa dauðann og djöfulinn í siði samfélagsins.

Hvernig dettur Arion banka að þjónusta einn aðalsökudólg hrunsins? 

 

 


Bloggfærslur 28. janúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband