Landnámið og aðildarsinnar

Fréttin um afrakstur rannsókna á Hofstöðum í Mývatnssveit rifjar upp áhlaup aðildarsinna á Íslandssöguna síðast liðið haust.  Af óútskýrðum ástæðum er Evrópusambandssinnum í nöp við viðurkennda þekkingu á landnámi Íslands og grípa hvert tækifæri til að gera hana tortryggilega.

Í haust skrifaði Páll Theodórsson eðlisfræðingur grein í Skírni um að landnámið væri 200 árum eldra en almennt er viðurkennt. ESB-RÚV hélt ekki vatni yfir Páli og átti við hann ítarlegt viðtal. Illugi Jökulsson tók undir og leyndi ekki gleði sinni.

Í lok nóvember efndi Reykjavíkurakademían til málþings um kenningar Páls. Fræðileg slátrun er milt orðalag yfir meðferðina sem Páll fékk hjá raunvísindamönnum og hugvísindamönnum.

Síðan eru aðildarsinnar fámálir um landnámið.


mbl.is „Tímamót í íslenskri fornleifafræði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptalegt siðferðisvottorð

Á sama tíma og sérstakur saksóknari rannsakar brot útrásarauðmanna eru eigurnar sem urðu til með vafasömum hætti á útsölu. Útrásarmenn og meðhlauparar þeirra ásælast þessar eigur og munu meðal annars beita fyrir sér þeim rökum að ekki megi mismuna áhugasömum kaupendum.

En það á einmitt að mismuna. Það á ekki að líðast að útrásaraðallinn stundi áfram viðskipti. Það á að spyrja um viðskiptalegt siðferðisvottorð þessara manna.

Það mun taka lengri tíma að uppfæra sakavottorð útrásarmannaanna til samræmis við glæpina sem þeir frömdu. Viðskiptalegt siðferðisvottorð liggur meira og minna fyrir því það er ferlisskráin síðasta áratug. 


mbl.is Húsleit á 12 stöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins samið án Steingríms J.

Steingrímur J. stendur í vegi fyrir nýjum Icesave-samningi. Hann ber aðalábyrgðina á þeim fyrri og hefur margítrekað að betri samning sé ekki hægt að fá. Steingrímur J. hefur pólitíska hagsmuni af því að ekki fáist betri samningur.

Ríkisstjórnin reyndi að leiða stjórnarandstöðuna í gildru með því að leggja málið upp þannig að Bretar og Hollendingar krefðust þess að allir flokkar gæfu skuldbindandi loforð um að fallast á helstu kröfur þeirra í Icesave áður en gengið yrði til samninga að nýju. Jóhönnustjórnin hefur áður leikið þann leik að segja kröfu viðsemjenda okkar þessa eða hina, t.d. að samningnum skyldi haldið leyndum.

Jóhönnustjórnin reynir að kaupa sér tíma. Síðasta útspil er hugmynd um að fresta atkvæðagreiðslu vegna skýrslu rannsóknanefndar alþingis um hrunið. 


mbl.is Samið á nýjum forsendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. janúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband