Laugardagur, 2. janúar 2010
Eftir synjun kemur afsögn
Forsetinn mun synja Icesave-frumvarpinu staðfestingar og í framhaldi verður ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að segja af sér. Minnihlutastjórn Vinstri grænna, kannski með Framsóknarflokki, tekur við völdum með fulltingi Sjálfstæðisflokksins.
Icesave-frumvarpið frá í sumar gildir og ný stjórn segir Bretum og Hollendingum að meira sé ekki hægt að gera í bili. Þegar bú Landsbankans er gert upp er hægt að ræða saman aftur. Bretar og Hollendingar eru ekki í neinni stöðu til að standa að alþjóðlegu áhlaupi á Ísland.
Umsóknin um aðild að Evrópusambandinu verður dregin tilbaka og samfylkingartilræðið gegn fullveldi landsins er runnið út í sandinn.
Gleðilegt ár.
![]() |
Afhenda forseta undirskriftir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |