Þriðjudagur, 21. júlí 2009
Lettlandi er stjórnað frá Brussel
Ríkisstjórn Lettlands fær ekki heimild til að taka neinar stórar ákvarðanir um fjármál ríkisins án samþykkis frá höfuðstöðvum Evrópusambandsins annars vegar og hins vegar Alþjóðgjaldeyrissjóðnum. Þetta eru skilyrðin sem ríkisstjórnin í Riga þarf að skrifa upp á til að njóta aðstoðar Evrópusambandsins. Í reynd er lettneska ríkisstjórnin að viðurkenna að ríkið er ekki lengur fullvalda, segir Sænska dagblaðið.
EU:s fortsatta finanshjälp till Lettland villkoras med att inga större ekonomiska beslut får fattas utan att EU och IMF (Internationella valutafonden) tillfrågas först - i praktiken ett omyndigförklarande av regeringen i Riga.
Íslenskir aðildarsinnar spyrja jafnan með þjósti hvort smáríki Evrópusambandsins séu ekki fullvalda. Svarið er komið.
Hér er umfjöllunin í Sænska dagblaðinu.
Þriðjudagur, 21. júlí 2009
Afturkræf svik og óafturkræf handvömm
Svik Vg í ESB-málinu eru afturkræf, við munum kjósa nýtt þing áður en samningar við ESB eru undirskrifaðir og köllum sendinefndina heim. Icesave-samningurinn er því sem næst óafturkræfur slysist Alþingi til að samþykkja hann. Lögfræðileg rök, efnahagsleg og siðferðileg rök standa öll til þess að Alþingi eigi að hafna samningnum og fulltrúar þjóðarinnar verða að gera skyldu sína í þessu máli. Aukaatriði er hvort ríkisstjórnin standi af sér niðurstöðuna.
Alþingi má undir engum kringumstæðum samþykkja Icesave. Þótt það kosti málþóf fram að jólum.
![]() |
Erfitt en verður að leysast" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)