Fimmtudagur, 25. júní 2009
Dramakerlingarnar Mörður og Silja Bára
Ef við samþykkjum ekki Icesave-samningana verður Ísland eins og Albanía, segir Mörður Árnason og hefur eftir Silju Báru Ómarsdóttur sem fékk það hjá nafnlausum Breta. Þegar aðildarsinnar og Icesaveistar eru komnir á kaf í valkvæða móðursýki hvernig væri að gefa okkur almennilegt trukk.
Hvað með þetta: Ef við samþykkjum ekki Icesave verður Ísland notað sem æfingasvæði fyrir kjarnorkusprengjur.
Eða: ...við verðum öll flutt til Wales þar sem enginn vill búa.
Annað:...íslenskar konur verða allar gerðar ófrjóar til að fyrirbyggja útungun á fjármálasnillingum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fimmtudagur, 25. júní 2009
Þjófnaður í aukasetningu
Verðbólga er samkvæmt nýjustu mælingum 12 prósent. Stýrivextir Seðlabankans eru sama prósentutala. Hvers vegna bera almennir reikningar sem fólk notar aðeins fimm til sjö prósent vexti? Hvers vegna stela bankarnir mismuninum?
Skýringin sem gefin er í fréttaskýringu Morgunblaðins í dag er ekki trúverðug. Þar segir í aukasetningu með umfjöllun um verðmat bankanna að það sé gjaldeyrisójöfnuður hjá bönkunum sem
felst í því að vextir bankanna af innlánum í krónum hafa verið mun hærri en vextir þeirra á útlánum í erlendri mynt.
Í framhaldi af þessum fjármálaprósa segir að bankarnir eigi svo mikið af útlendum peningum sem beri lága vexti og því sé nauðsynlegt að ræna íslenska sparifjáreigendur til að vega upp þann mun.
Ef bankarnir sitja uppi með fjallháa stafla af útlendum peningum á lágum vöxtum, hvernig væri að skipta þeim fyrir íslenskar krónur? Þá myndi gengi krónunnar hækka og verðbólga lækka.
Er skýringin kannski sú að fjármálafíflin sem komu okkur út í kviksyndið stýri enn peningageiranum og ljúga að okkur endurhannaðri sögu um nýju fötin keisarans?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 25. júní 2009
Sátt um þjóðargjaldþrot, nei takk
Ef aðilar vinnumarkaðarins skrifa upp á sáttmála sem ekki gerir ráð fyrir að Icesave-samningarnir verði felldir er verið að sættast á þjóðargjaldþrot. Í samanburði við fjárhæðir Icesave, sem hlaupa á bilinu 650 - 800 milljarða króna, er verið að semja um tittlingaskít í svokölluðum stöðugleikasáttmála.
Það er eins og flestar meginstofnanir þjóðfélagsins ætli að læsa saman klónum og telja okkur trú um að Icesave sé tæknilegt úrlausnarefni.
Ef aðilar vinnumarkaðarins hafa minnsta áhuga á að vinna tilbaka glatað traust væri þeim nær að krefjast þess að Icesave-samningarnir verði felldir en að semja um smátilfærslur á skattabyrði og launaliðum.
![]() |
Undirritað ef sátt næst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |