Laugardagur, 13. júní 2009
Mykjukláfur útrásarinnar
![]() |
Málflutningur Joly gagnrýndur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 13. júní 2009
Moggalygi
Hugtakið Moggalygi varð til á kaldastríðsárunum og vísaði til þess að blaðið hagræddi sannleikanum í þjónkun við hugmyndafræði. Moggalygi er enn iðkuð og núna til þvæla Íslendingum inn í Evrópusambandið. Spurningin sem Morgunblaðið notar í þessari könnun er beinlínis hönnuð til að draga fjöður yfir pólitískan veruleika eins og hann blasir við öllum með réttu ráði.
Fyrir Alþingi Íslendinga liggur fyrir eftirfarandi þingsályktunartillaga: Tillaga til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Ályktunin er ein setning, svohljóðandi: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning.
Eina eðlilega spurningin sem hægt er að spyrja í þessu samhengi væri eftirfarandi: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu?
En hvað gera viðundrin á ritstjórn Mogga? Jú, þeir panta þessa spurningu hjá Capacent: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að taka upp aðildarviðræður við ESB?
Við stöndum ekki frammi fyrir vali um aðildarviðræður heldur hvort við ætlum að sækja um aðild eða ekki. Meira að segja málfarslega er spurningin tómur bjánagangur. Hverjir taka upp viðræður?
Íslendingar hafa um langa hríð verið í viðræðum við Evrópusambandið um hverskyns mál. Íslenskar sendinefndir hafa reglulega farið til Brussel til að kynna sér stöðu mála. Moggalygin gengur út á að flétta saman viðræðum og aðildarumsókn.
Fjölmiðill á að upplýsa og bregða ljósi á menn og málefni. Morgunblaðið spinnur lygavef.
![]() |
58 prósent fylgjandi ESB-viðræðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)