Miðvikudagur, 29. apríl 2009
Þjóðleg endurreisnarstjórn
Evrópumálin verða ekki útkljáð á milli Samfylkingar og Vinstri grænna af neinu viti. Jafnvel þótt málamiðlun finnist verður ekki friður á milli þessara flokka, öðrum mun ávallt finnast full mikið gefið eftir. Flokkarnir gætu sameiginlega ákveðið að það sé fullreynt án þess að valda sjálfum sér og þjóðinni skaða.
Tveir kostir yrðu um ríkisstjórn. Annars vegar Samfylking, Framsóknarflokkur og Borgarahreyfing með veikan meirihluta, 33 þingmenn. Hins vegar Vinstri grænir, Framsóknaflokkur og Sjálfstæðisflokkur - vel að merkja undir forystu Steingríms J. - með traustan meirihluta, 39. Það væri þjóðleg endurreisnarstjórn sem hvorttveggja væri nógu breið og djúp til að takast á við eftirmál hrunsins.
![]() |
Viðræðum haldið áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 29. apríl 2009
Raðbilun Samtaka iðnaðarins
Myndin sýnir subbulegan miðaldra kall gera vont við unga konu sem liggur bjargarlaus á bakinu. Miðaldra subbukarlinn er auðvitað Samtök iðnaðarins og saklausa stúlkan íslenska fjallkonan sem hné í ómegn við hrunið. Misþyrmingin sem stendur fyrir dyrum er að Samtökin ætla að nauðga fjallkonunni til Brussel.
![]() |
Auglýsing SI vekur hörð viðbrögð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)